apríl 29, 2005

Reykjavík 101

Nei, ekki 101 Reykjavík, heldur Reykjavík 101, svona svipað og Stærðfræði 101.

Þar sem ég sit í egypskri sólinni og les Moggann í dag rakst ég á þessa mynd:
Myndin er tekin í heimilarleysi af vef Morgunblaðsins en rétt er að taka fram að hana tók Árni Sæberg.

Myndin minnti mig svolítið á það sem skipulagsyfirvöld hafa gert hérna í Kaíró með því að troða heljarstórum, 2-4 akreina vegum, oft á tveimur hæðum, í gegnum borgina, sérstaklega miðborgina. Afskaplega ljótt en mjög skiljanlegt þegar tekið er tillit til þess að um miðjan daginn eru ekki minna en 16 milljónir manna sem þurfa að komast ferða sinna um borgina. Hér verður ekki einkabílismanum kennt um, nema í betri hverfum borgarinnar, þegar allt verður stopp. Fólk er einsog sardínur í strætóum en enn fleiri taka míkróbus á milli staða. Metróinn, samgöngukerfi nútímaborga, flytur fólk allt frá Giza norður til Shobra eða El-Marg og allt suður í gegnum úthverfin til Helwan. 16 milljónir manna.

Um Reykjavíkursvæðið fara ekki fleiri en 150 þús. manns. En einsog í öðrum borgum Mið-Vestursins þarf meira malbik en menningu. Ef allir Reykvíkingar færu út á götu í einu hefði hver og einn sjálfsagt fleiri malbikaða fermetra en nokkur önnur Evrópsk borg með rúmlega 100 þús. íbúa. Þegar við bætist að Íslendingar þola ekki að sjá nágranna sína út um eldhúsgluggann og byggja þess vegna með lengra á milli sín en ætla mætti af þjóð með þessa veðráttu verður til ein strjábýlasta höfuðborg heimsins. Höfuðborgarsvæðið hefði yfir milljón íbúa í öðrum löndum. Ekki nema von að það sé aldrei logn í íslenskum úthverfum, það er ekkert skjól af malbiki og grasflötum.

Við Hringbrautina hefur, einsog myndin sýnir, verið ákveðið að byggja breiðustu götu landsins. Hún nær frá Landspítalanum og út í Vatnsmýri. Tanngarður myndar svo stærstu umferðareyju landsins mitt í öllu asfaltinu.
Agust skrifaði 29.04.05 15:21

Flokkun: Ísland
Comments

Þetta er nú samt bara temporarí ástand.

svansson skrifaði 29.04.05 17:55

Já og nei. Það skipulag sem ég sá í haust fyrir svæðið, einhver fréttamynd um hvernig þetta mun væntanlega líta út gerir ráð fyrir að halda nyrðri helmingnum af gömlu Hringbrautinni sem inn- og útkeyrslu fyrir Landspítalann og hluta af bílastæði spítalans sem verður stækkað til mikilla muna.

Tekinn er þessi undarlegi sveigur á brautina og settar sleifur og borðar til skreytingar. Gott og blessað ef þú hugsar í sekúndum sem það tekur þig að komast frá A til B en það eina sem hefur verið gert er að einn vegur hefur verið færður og stækkaður. Hagkvæmnin fyrir akendur er minniháttar. Aðrir flöskuhálsar sjá til þess.

Svo gætum við alveg farið út í umræðuna um hversu út-í-hött hugmyndin um að hafa (í raun) eina spítala landsins í 101, með tilheyrandi uppbyggingu. Einu rökin sem maður sér með því er að í stað þess að byggður verði upp spítali á Akureyri verði allt flutt suður á Hringbrautina og þar með halda uppáhaldsrök flugvallarsinnanna, "við verðum að hafa Reykjavíkurflugvöll fyrir sjúkraflugið!"

Samsæmiskenning? Kannski. Eitt er víst að skynsemin mun hvort eð er aldrei ráða för, þannig maður ætti allt eins að hætta að pirra sig á þessu og ganga bara í Grand-Framsóknarflokkinn einsog hinir!

Ágúst skrifaði 29.04.05 19:16

Amen við síðustu málsgreininni Ágúst. Hún tjáir fullkomlega hvernig mér líður varðandi skipulagsmálum hér í borg... ;)

Unnur skrifaði 02.05.05 22:15

Þetta er algjörlega rétt hjá Ágústi. Það sjá það allir að þessi spilda verður aldrei nýtt til neins gagnlegs. Þetta verður að sjálfsögðu stærsta umferðareyja borgarinnar og ekki til annars nýtileg en sem blómabeð sem læknanemar geta notað til að hvíla sig í milli kennslustunda, í besta falli æfingasvæði fyrir sumarstarfsmenn borgarinnar. Það er fjarstæða að ætla að þarna verði byggður nokkur skapaður hlutur.

Auðvitað er svo ekkert vit í að nýta þá uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað á Landspítalalóðinni, að sjálfsögðu ætti að byggja bara allt frá grunni. Enda eins og Ágúst segir, engin rök fyrir því að hafa hann í 101 nema bara af því að landsbyggðarhyskið vill hafa hann þarna.

Ágúst og flöskuhálsaspekúlantarnir hafa svo að sjálfsögðu rétt fyrir sér. Ef eiginleg gatnamót hverfa þá leysist enginn vandi, flöskuhálsinn hreyfist bara! Ég hef t.d. lengi bent mönnum á að ef öll gatnamót í Reykjavík yrðu mislæg nema ljósin á gatnamótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar yrðu eftir þá gengi umferðin alveg nákvæmlega jafn greitt...flöskuhálsinn myndi bara hreyfast yfir á gatnamótin við Hálsahverfi.

Svo er þessi framkvæmd náttúrulega fokdýr, sannkölluð stórframkvæmd, betra væri að nýta peninginn í að fjármagna fjöldaáskrift fyrir háskólanema á New York Times.........nei annars, þá myndum við þessir fáu sem lesum það, missa sérstöðu okkar. Að sjálfsögðu finnst mér aukaatriði að reiknað hafi verið að sparnaður vegna aukin umferðaöryggiss á svæðinu borgi framkvæmdina upp á ekki svo löngum tíma. Aukið umferðaröryggi er nefninlega hlutur sem mér finnst vera gert alltof mikið úr. Mér finnst nefninlega að Reykvíkingar eigi að taka strætó, það myndi sko skapa meira öryggi fyrir mun minni pening......svo er það líka svo cosmopolitan.

Æ sorrí, ég er í prófum og bara stóðst ekki mátið :-)

HRD skrifaði 07.05.05 19:06

Neineineinei minn kæri HRD (ákjósanlegra er að menn skrifi komment undir nafni), þú misskilur. LEST, ekki strætó :-)

Ágúst skrifaði 07.05.05 22:27

Öllu gamni slepptu þá sýnir sýnir myndin vel hversu skemmtilegt hugvit liggur að baki göngubrúnni neðst á myndinni,....skrýtið að allir þessir framkvæmdalúðar sem blogga skuli ekki hafa veitt þessu eftirtekt.

HRD skrifaði 12.05.05 12:45