maí 20, 2005
Aristókratar
Að vera áskrifandi að expata-fréttbréfi Daily Telegraph þýðir að maður fær reglulegar fréttir af glaumlífi, morðum og skandölum breskra aristókrata.Margir halda að dagar hvíta mannsins í Afríku séu taldir. Í Kenýu er hinsvegar ennþá gott að vera breskur aðalsmaður. Sérstaklega ef þú "lendir í því" að drepa einn innfæddra. Sonur Barónsins af Delamere var nýlega ákærður fyrir að drepa þjóðgarðsvörð á landareign föður síns. Hann neitaði öllu og komst upp með það.
10. jarlinn af Shaftesbury, þekktur glaumgosi á sjötugsaldri, var væntanlega drepinn fyrir nokkrum vikum. Sonur hans, 11. jarlinn, dó núna, 6 vikum eftir að hann erfði titilinn af föður sínum. Hann ku hafa fengið hjartaáfall án þess að hafa haft yfir nokkru að kvarta með heilsu sína. Hann var í heimsókn hjá yngri bróður sínum þegar hann lést. Sami bróðir verður nú 12. jarlinn af Shaftesbury. (Sjá frétt)
Agust skrifaði 20.05.05 14:13
Flokkun: Mannlíf á jörðu