maí 20, 2005

Þórðargleði

Selma komst ekki áfram í gærkvöldi. Ég horfði að sjálfsögðu ekki á keppnina en spennan yfir því hvort að Ísland kæmist áfram þegar búið var að tilkynna helming þjóðanna sem færu áfram í úrslitin. Þá komu spennandi tvær mínútur. Skemmtilegast var að hlusta á kveinið í júróvisjóngrúbbíu lýðveldisins engjast yfir ósanngirni Evrópumanna gagnvart "Selmu okkar".

Ég hafði heyrt fyrstu sekúndurnar af íslenska laginu í vikunni. Þegar ég var að koma neðan úr hesthúsi í gærkvöldi kom Rás 2 á þegar ég kveikti á bílnum og í stað frétta og Kastljóss hljómaði týpískt júróvisjóngaul. Ég fattaði reyndar áður en ég skipti yfir á geislaspilarann að þetta væri Selma sjálf að syngja. Ég hef því ekki enn tekist að sitja á mér út allt lagið að skipta yfir á eitthvað annað.

Annars sá ég framlag Norðmanna í heild sinni (ásamt einhverjum gleymanlegum framlögum annarra þjóða) í þætti í vikunni. Þeir vinna varla, veit ekki einu sinni hvort þeir eru í úrslitum en 80s-rokkið þeirra er kúl. Íslendingar misstu af tækifærinu til að slá í gegn í keppninni þegar súkkulaðisöngkonan var send út um árið og Botnleðja lenti í 2. sæti, þökk sé 11 ára áhorfendum um allt land á öllum aldri.

En já, mér var mikið skemmt yfir þessum "skandal" og ef ég gæti fengið sjálfan mig til að hlusta á íslenska útvarpsmenn þá voru þeir sjálfsagt froðufellandi yfir þessu öllu saman.

Mín tillaga er hinsvegar að koma með krók á móti bragði í þessari keppni (fyrst öllum er svona umhugað um að eyða sem mestu skattfé í þessa endemis vitleysu). Á Íslandi búa nú töluverður fjöldi af "pólskum Íslendingum", fólk sem hingað hefur komið frá Póllandi eða er af pólsku foreldri. Sendum út pólskt lag um einingu Evrópu eða eitthvað álíka og viti menn, við munum komast á topp 5. Því lofa ég.

Ég sá í dag í blaðinu að Skjár 1 mun sýna einhverja bestu gamanmynd allra tíma á sama tíma og Júróglissjóvið verður í Sjónvarpi ríkisins. Ég mæli með að allt sjálfselskandi fólk geri sjálfu sér þann greiða að horfa frekar á Annie Hall á laugardaginn.
Agust skrifaði 20.05.05 14:37

Flokkun: Ísland