maí 27, 2005

Góðar fréttir - á Íslandi!

Ég er mjög sáttur yfir tveimur fréttum sem bárust í vikunni, þá þær séu af mjög ólíkum toga.

Í fyrsta lagi var skrifað undir fyrstu "lífsskránna" á Íslandi, sem er yfirlýsing sem einstaklingur getur gefið út þar sem hann "framselur" ákvörðunarréttinn um líf sitt til annars einstaklings sem hann treystir, um hvenær hætta skuli að halda viðkomandi lifandi ef hann missir hæfileikann til að tjá sig og er ófær um að ákveða slikt sjálfur. Fyrir marga er þetta mikill léttir, að hægt sé að ganga frá þessum málum meðan fólk er í fullu fjöri.
Fyrir fjórum árum skrifaði ég pistil um frelsi manna til að deyja (sbr. frelsi til að lifa) á Frelsi.is, hann er hægt að lesa hér. Það er þó önnur umræða - en skild.

Hin fréttin sem ég fagnaði - og var raunar nær orðlaus af undrun yfir - var að Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna í Reykjavík (einnig þekktur manna á milli sem "flokkur miðaldra, hugmyndalausra jeppaeigenda í úthverfum") hefur allt í einu gefið sér von um að verða "electable" í næstu kosningum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson kom í Kastljósið og lýsti hugmyndum Flokksins um framtíðar skipulag borgarinnar. Og viti menn, á dauða mínum átti heldur von en þetta, þeir fara langleiðina með mínar draumahugmyndir (og reyndar fleiri, t.d. Hrafns Gunnlaugssonar) um að byggja eyjarnar úti fyrir borginni. Eina sem vantar upp á er að búa til "Grjótaþorp" í Viðey ásamt svona sex stjörnu "hotel resort" fyrir ríkustu túristana (en aðalatriðið er að byggja dýrustu íbúðir bæjarins á þessum exclusive stað, þar sem hægt væri að sigla út í eynna með bát frá einkabílastæði íbúanna). En að byggja Engey er líklegast besta hugmynd í skipulagsmálum sem komið hefur frá borgarstjórnarflokki árum saman. Nú er bara óskandi að þeir byggi eynna nógu þétt og hátt, þannig að þjónusta geti staðið undir sér í eynni. Þar ættu að búa álíka margir per hektara og í 101 (70 íb/h) og þar með væri hægt að bjóða upp á næga þjónustu. Ekki þyrfti miklar uppfyllingar en til að hverfið borgi sig þarf bókstaflega að koma sem flestum íbúðum á eyjunna. Guði sé lof fyrir það því þar með byggist e.t.v. íbúðarhæft svæði. Fyrir tæpri viku síðan lýsti Gísli Marteinn, keppinautur Vilhjálms um 1. sætið hjá Flokknum, því yfir að flugvöllurinn ætti að víkja. Hvað er að gerast? Er Sjálfstæðismenn í borginni orðnir svo desperate að þeir eru farnir að meika sens? Munu þeir halda þessu út til kosninga eða hverfa aftur í úthverfaismann og bókhaldsnöldur?
Agust skrifaði 27.05.05 21:05

Flokkun: Ísland
Comments

Magnað!

Það færi þó aldrei svo að maður myndi freistast til að færa Íhaldinu aftur borgina.

Einar Örn skrifaði 27.05.05 21:40

Frábært hvað þú ert duglegur að skrifa þessa dagana.

Meira svona!

Einar Örn skrifaði 14.06.05 23:48