júní 28, 2005

Harðlínumaður eða íhaldsmaður?

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna Ahmadinejad er kallaður "harðlínumaður" af öllum fréttastofum?

Er það vegna þess að enskumælandi fjölmiðlar apa hver upp eftir öðrum að tala um hann sem "hardliner" (sbr. "Iran's new hardline President, Mahmoud Ahmadinejad")?

Er eitthvað að því að kalla hann "íhaldsmann" eða tala um að "hinn íhaldssami Ahmadinejad" hafi sigrað?

Annars stóð í mér þegar ég heyrði í einhverjum fréttatímanum að Rafsanjani væri "hófsamur" og "umbótasinnaður". Það skársta sem ég hef heyrt um hann af tilþekkjandi aðilum er að hann er "pragmatískur".

Kannski það sem íslenskir fréttamenn hafa ekki skilið er að Ahmadinejad er fylgjandi "harðlínustefnu" í mörgum málaflokkum á meðan að Rafsanjani hefur verið hófsamari. Báðir eru þeir hinsvegar hinir örgustu íhaldsmenn.

Íranir voru ekki að hafna með beinum hætti "hófsamari" röddunum, heldur má frekar líkja þessu við það ef Reykvíkingar hefðu fengið að velja milli Alfreðs Þorsteinssonar og Árna Þórs Sigurðssonar og hafnað þeim fyrrnefnda. Það þýddi ekki að allir Reykvíkingar væru á móti álverum og bjór í Egilshöll...
Agust skrifaði 28.06.05 00:51

Flokkun: Mið-Austurlönd
Comments

Hafandi sagt þetta, þá er þetta athyglisverð grein: Iran's human face is gone. Hardline vote-riggers have spirited it away, Michael Gove, The Times 29/6 '05.

Ágúst skrifaði 29.06.05 22:48