júní 29, 2005
Skyldbreyting R-lána hjá LÍN
Unnur var að velta fyrir sér á síðunni sinni hvort það borgi sig að skuldbreyta R-lánum hjá LÍN (fresturinn rennur út á morgun!). Ég hafði einmitt verið að velta þessu fyrir mér og ákvað að skoða hverju þetta munaði nú á endanum. Mér rann því blóðið til skyldunnar að svara þessu.Sem háæruverðugur viðskiptafræðingur og krónískur endurskoðandi verð ég að svara þessu.Þangað til einhver leiðréttir mig stend ég við þetta. Ég ætla a.m.k. að skuldbreyta mínu láni af ofangreindum ástæðum.
Ég henti þessu aðeins upp í Excel að gamni og skv. grófri áætlun (köllum dæmið "Heimspekideildardömuna" þar sem það var gert m.v. eina slíka) sýnist mér að það muni fyrir manneskju með 1,5 m. í lán og tekjur upp á 200 þús. á mán. u.þ.b. 50 þús. krónum á heildina litið.
Annað dæmi leiðir í ljós (köllum þennan "viðskiptafræðimenntaða millistjórnandann") að m.v. 1,5 m. lán en árstekjur upp á 4 m. (333 p.mán) þá græðir greyið ekki nema 30 þús. á skuldbreytingunni.
Í báðum dæmum er gert ráð fyrir 3% verðtryggðum vöxtum sem að mismunurinn er að sjálfsögðu lagður inn á :)
Ef við segjum hinsvegar sem svo að munurinn á afborgununum sé notaður til að minnka yfirdráttinn (12% þegar verðbólga hefur verið frádregin) væri millistjórnendagreyið að spara sér 95 þús. kall en heimspekidaman 110 þús. En í þessu dæmi erum við farin að reisa okkur skýjaborgir, þannig þetta er meira útúrdúr.
Án allra Excel-útreikninga er hægt að færa "stærðfræðilegri" rök fyrir þessu. Vextir af lánunum er 1% plús verðtrygging. Innlánsvextir banka eru hinsvegar 3-3,5% af verðtryggðum bókum. Því mætti segja (3+X)-(1+X)=2,25 þar sem X táknar verðbólgu sem er auðvitað sú sama hvort þú skuldar eða átt peninga. Vaxtamunurinn er því hagstæður fyrir þig í þessu tilfelli. Nema auðvitað að þú gerir ekkert með peninginn sem eftir verður, hann verður að "spara" þér meira en 1%. Auðveldast væri að leggja mismuninn inn á bók og nota þetta sem tækifæri til "ókeypis" sparnaðar :)
Stutta svarið er semsagt: Já, skuldbreyttu ;)
Agust skrifaði 29.06.05 00:07
Flokkun: Viðskipti
Vá hvað þú ert klár, á svona stundum líður mér eins og að ég eigi bara að fara heim að vaska upp... ég er svo innilega bara stelpa ... :)
Kristína skrifaði 29.06.05 03:56Takk fyrir upplýsingarnar. Ein spurning sem vaknar: Hvað þarf maður að skulda mikið til að það taki því að breyta? Í dæminu miðar þú við 1.5M en breytist útkoman ekki ef skuldin er bara 0.5M eða enn minna?
Kristján skrifaði 29.06.05 12:03Sendu mér email, Kristján, og ég skal senda þér Excel-skjalið sem ég var að búa til fyrir þessar forsendur.
Ágúst skrifaði 29.06.05 12:54Ég mun aðeins pæla meira í þessu... hef til 1. nóv að pæla í þessu...
Strumpurinn skrifaði 29.06.05 16:11Úff... BARA stelpa...
Þetta minnti mig á samtal sem móðir mín átti við 9 ára gamlan bróður minn á sínum tíma (hann er 25 í dag):
Mamman: Helgi minn, vilt þú ekki vaska upp eftir matinn?
Helgi: Ég? Af hverju gerir Arndís það ekki?
Mamman: Ehh, af hverju ætti hún að gera það frekar en þú?
Helgi: Því hún er BARA stelpa!
Úff aftur...