júlí 11, 2005
Versta sumarveður höfuðborgar í heimi
Að eiga heimsmet eru ær og kýr Íslendinga. Einu flagga þeir þó lítið.Af öllum löndum heimsins, sem af einhverju viti eru byggð, á Ísland verstu höfuðborg heims þegar kemur að sumarveðri.
Með vísan í færslu EOE.is skal t.d. nefna Ulanbatur og Moskvu, þar er meðalsumardagur með hita yfir 20 stig. Íbúar Wellington á Nýja-Sjálandi fá 19 stig að meðaltali þegar hæst er yfir daginn. Í Alaska (og til að gera leikinn meira spennandi viðurkennum við Alaska sem "land") fer meðalhitinn upp í 17-18 stig í þrjá mánuði á ári - sama hvað Velvet Underground segir.
Gott og vel, færum hörku í leikinn og gefur Grænlandi og Færeyjum aukið sjálfstæði. Þar ættu höfuðstaðirnir að veita Reykjavík harða samkeppni í veðurþunglyndinu. Til hægðarauka er tölfræðin sett í mynd:
![]() |
Ef við hinsvegar sleppum allri aumingjafrændsemi og berum aðeins saman höfuðborgir sjálfstæðra ríkja þá er Reykjavík versta höfuðborg heims til að njóta sumarblíðunnar.
Og fyrst ég er byrjaður, Lundúnarbúar er gjarnir á að kvarta undan rigningunni. Má ég kynna Reykjavik-London, baráttu blautu borganna!
Janúar: Meðalúrkoma í Reykjavík 86 mm - London 79 mm
Febrúar: Reykjavík 74 mm - London 51 mm
Mars: Reykjavík 76 mm - London 61 mm
Apríl: Reykjavík 56 mm - London 53 mm
Maí: Reykjavík 43 mm - London 56 mm
Júní: Reykjavík 46 mm - London 56 mm
Júlí: Reykjavík 51 mm - London 46 mm
Ágúst: Reykjavík 61 mm - London 56 mm
September: Reykjavík 71 mm - London 69 mm
Október: Reykjavík 89 mm - London 74 mm
Nóvember: Reykjavík 84 mm - London 76 mm
Desember: Reykjavík 84 mm - London 79 mm
Reykjavík vinnur með yfirburðum 10-2. Ársmeðaltal er samkvæmt þessu Reykjavík 68,4 mm, London 63 mm. Niðurstaða: Í upphafi sumar er blautara í London, annars er oftar rigning í Reykjavík.
Heimildir: uk.weather.com
Agust skrifaði 11.07.05 22:40
Flokkun: Ísland
Comments
Við munum víst líka eiga minnsta bíósal í heimi - litla salinn í kjallara Sambíóanna í Álfabakka. Annað glæsilegt heimsmet sem er furðu lítið plöggað.
Ásgeir H skrifaði 12.07.05 02:58Nei er það ekki salur 4-5 í Háskólabíói?!
Arnór Bogason skrifaði 12.07.05 22:48Þú upplifðir það sem sagt aldrei að fara í bíósalinn sem var uppi í Álfabakkanum hann tók örugglega ekki fleiri en 30 í sæti
Doddi skrifaði 12.07.05 23:3517 sæti, aktúallí
SH skrifaði 13.07.05 12:31Hvað með úrkomu í öðrum höfuðborgum heims?
Hulda Sif skrifaði 14.07.05 18:43