júlí 14, 2005
Saltfiskur, sviti og sumarveður
Í gærkvöldi bauð rokkstjarna mér í rosalega góðan saltfisk. Ég borðaði á mig gat og hefði alveg getað borðað heimatilbúna majonesið með skeið það var svo gott! (reyndar heitir þetta ekki majones heldur er eitthvað franskt næstum-majones)Svo var planið að horfa á Goodbye Lenin en þar sem ég ætlaði að fara heim að kvíla mig eftir eftirréttinn sökum þreytu og slappleika var heimildarmynd um Ramones sett í tækið. Og vá! Ég gat ómögulega farið heim fyrr en hún var búin. Skítt veri með það að mig verkjaði í augun.
Í kvöld fór ég svo í ræktina í fyrsta skipti í 14 mánuði. Dró Kristófer með mér. Það var mjög gott. Svona gott-vont. Alls ekki eins erfitt og var búinn að búa mig undir. Reyndar þegar ég var búinn að hlaupa á 12 km hraða í 5 mínútur komu svona 20 sek. sem ég hélt ég myndi æla en þar fyrir utan var þetta ekki svo slæmt. Enda tókum við ekki erfiða æfingu.
Þegar ég kom aftur heim í maí brá mér eiginlega að sjá hvað það eru margir sem eru drukkna í eigin spiki hérna. Og gera ekkert í því. Sjálfur skildi ég þetta aðeins betur þegar ég fitnaði um 5 kg á 6 vikum - og fór létt með það. Ég hef ekki hreyft mig síðan ég kom hingað. Maður labbar ekkert nema innan bílastæðisins þar sem maður lagði. Ein hræðileg afleiðing skipulags meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Matarmenning þjóðarinnar er forkastanleg. Hafandi búið í vetur þar sem allt hráefni er ferskt og "hreint" og grænmeti og baunir uppistaða í næringunni fékk ég hálfgert counter-culture shock. Hvað gengur fólki t.d. til með að eyðileggja fisk með að raspa hann? Snakk og sælgæti hafði ég heldur varla borðað nema í smáum einingum í vetur. Keypti mér þó stundum lítinn snakkpoka svona á milli mála. Það voru 10 gr. pokar, 55 kaloríur. Hérna kaupir enginn annað en 200 gr. fjölskyldupoka, 1100 kaloríur - það er 40% dagsþarfar fyrir fullhraustan karlmann. En til að festast ekki í lífsmáta hjarta- og æðasjúkdóma, ónýtra hnjáa og bakverkja ætla ég að taka mig núna á. Búinn að fá nóg af þessu rugli. Framreiknað enda ég annars í 100 kílóum áður en október er liðinn.
Ég fékk bókasendingu frá amazon.co.uk í gær. Þar á meðal var 700 bls. spánnýr doðrant um sögu post-colonial Afríku, skýrsla The Commission For Africa og 2 skólabækur fyrir næsta vetur; önnur um alþjóðapólitík Austur-Asíu, hin um þróunarfræði.
Það má því rigna eldi og brennisteini mín vegna það sem eftir er af "sumrinu". Ég er búinn að hækka á ofnunum í húsinu eftir að hafa skolfið einsog hrísla í kuldanum í gær. Ég á bæði lopapeysu og kaffivél. Ég er með lesefni næstu vikur. Sem er eins gott því samkvæmt spánni verður rigning fram í september. Þá byrjar haustveðrið.
Agust skrifaði 14.07.05 01:26
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Majo-ið heitir aïoli :) Mikilvægur hluti af matarmenningu suðurfrakka. Ég vék frá staðaluppskriftinni með því að setja smá steinselju útí sósuna en þó má segja það hafi gert hana meira ekta því að í suðurfrakklandi á hver sönn húsmóðir auðvitað sína fjölskylduleyndarmálsaïolíuppskrift! ;) Grænmetið hét svo ratatouille og líka týpískt suðurfranskt meðlæti sem að sjálfsögðu er útfært á örlítið mismunandi máta eftir því í hvaða eldhúsi þú lendir :)
Unnur skrifaði 14.07.05 12:58