júlí 26, 2005

Sharm

Þar sem ég hef fylgst ansi vel með fréttum frá Egyptalandi síðustu misseri hefur maður lært að taka næstum öllu með ákveðnum fyrirvara. Fyrst voru þetta auðvitað innfluttir hryðjuverkamenn en nú eru þetta orðnir Bedúínar, hver veit? Samkvæmt frétt N.Y.Times af hryðjuverkunum í Sharm náði hinsvegar einungis einn árásarmannanna að sprengja sprengju þar sem hana átti að sprengja. (Sjá: Egyptian Police Say Security May Have Disrupted Bombers' Plan)

Eftir að hafa kynnst landinu af eigin raun betur en margur annar verð ég að segja að það kemur mér nokkuð á óvart að tekist hafi að sprengja upp Ghazala Gardens hótelið. Nær öll stór 4 og 5 stjörnu hótel hafa lokaða innkeyrslu að anddyrinu, þar sem verðir skoða alla bíla áður en þeim er hleypt inn að hótelinu. Þetta er misstrangt en er sérstaklega sýnilegt við t.d. Marriott og Hilton hótelin í Kaíró.

Árásin á markaðsgötuna í Sharm virðist, samkvæmt frétt NYT, hafa misheppnast. Eftir árásirnar á Khan el-Khalili og við Egypska safnið í apríl var öryggisgæsla enn hert á slíkum "opnum svæðum" þar sem ferðamenn eru í miklum meirihluta.

Eftir sem áður eru fórnarlömbin langflest Egyptar. Fyrir utan auðvitað að minnkandi ferðamannatekjur koma hart niður á efnahagskerfinu sem hefur verið í talsverðri uppsveiflu síðustu mánuði. Nazif stjórnin var vart búin að tilkynna að 2005 yrði metár í ferðamannabransanum þegar árásirnar voru gerðar í apríl, þær fyrstu á ferðamenn síðan fjöldamorðin 1997, utan árásinnar í Taba í haust (sem beindist sérstaklega að ísraelskum túristum).

Sharm er Las Vegas Rauðahafsins. Óraunverulegur eyðimerkurbær sem lifir á túrisma og engu öðru. Evrópubúar fljúga í tugþúsundatali með beinu leiguflugi þangað í 4-5 stjörnu sólarfrí fyrir sama pening og helgarferð til Parísar myndi kosta. Enginn staður stenst samanburð m.v. verð og gæði nema kannski Tæland og Balí. Sjórinn þar er einhver sá tærasti í heimi með ótrúlegum kóralrifum rétt fyrir utan hótelstrendurnar, sem nær allar eru afgirtar og í eigu hótelanna sjálfra.

Þessir sömu túristar sjá margir hverjir aldrei venjulegan Egypta og er systematískt "hlíft" við slíku. Um leið og þeir eru lentir á flugvellinum í Sharm eru þeir ferjaðir í rútum inn á hótel þar sem þeir verja næstu 7-21 dögum í vellystingum. Hluti þeirra flýgur yfir til Kaíró og/eða Lúxor að skoða menninguna og er þar hraðað í gegnum borgina utan umferðartíma í lögreglufylgd - í einskonar pakkaferðum ferðamannalögreglunnar. Koma svo heim með minniskortin full af Pýramítamyndum og skilja í staðinn eftir sig verðmæta dollara og evrur. Sumir koma brenndir heim af úlfaldahösslerum og póstkortapröngurum. (Auðvitað eru ekki *allir* Sharm-farar sem ferðast svona en þetta er mjög dæmigert samt.)

Egyptaland er annar vinsælasti sólardvalarstaður Þjóðverja á eftir Kanarí-eyjum. Það er beint flug frá 5-6 borgum í Bretlandi til Sharm. Vestrænni, óegypskari staður finnst ekki í Egyptalandi. Kannski ekki skrítið að árásin var gerð þar.

Einsog IRA-foringinn sagði um árið, lögreglunni þarf að takast að stöðva allar árásir hryðjuverkamanna - alltaf - en hryðjuverkamönnum þarf aðeins að takast ætlunarverk sitt einu sinni.
Agust skrifaði kl. 21:56
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd

júlí 18, 2005

Malaysia truely AAAsia!

Í dag fékk ég bréf frá Bretlandi. Konunglega (drottningarlega) pósturinum tókst einhvern veginn að senda bréfið, sem var skýrlega merkt ICELAND, til Malasíu (sem ætti reyndar að stafseta Maleysíu, þar sem nafnið er dregið af Maleyjum, ekki Mal-Asía).
Á umslaginu var búið að stimpla "Missent to Malaysia". Hversu algengt er að póstmeistarar malasíska ríkisins fái vitlaust sendan póst til sín fyrst þeir simpla þetta svona?
Þannig bréfið mitt fór frá Bretlandi til SA-Asíu og þaðan aftur til Evrópu (væntanlega í gegnum Þýskaland/Danmörku) og svo Íslands.
Agust skrifaði kl. 23:17 | Comments (3)
Flokkun: Daglegt líf

Norður-Kórea

Nicholas Kristof hefur ekki mikla trú á að hægt sé að "koma böndum á" Norður-Kóreustjórn.
So don't let the welcome resumption of the six-party talks distract us from the reality: Mr. Bush's refusal to engage North Korea directly is making the peninsula steadily more dangerous. More than at any time since the Cuban missile crisis of 1962, we are on a collision course with a nuclear power.
- Behind Enemy Lines
Agust skrifaði kl. 0:44
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

júlí 14, 2005

Saltfiskur, sviti og sumarveður

Í gærkvöldi bauð rokkstjarna mér í rosalega góðan saltfisk. Ég borðaði á mig gat og hefði alveg getað borðað heimatilbúna majonesið með skeið það var svo gott! (reyndar heitir þetta ekki majones heldur er eitthvað franskt næstum-majones)

Svo var planið að horfa á Goodbye Lenin en þar sem ég ætlaði að fara heim að kvíla mig eftir eftirréttinn sökum þreytu og slappleika var heimildarmynd um Ramones sett í tækið. Og vá! Ég gat ómögulega farið heim fyrr en hún var búin. Skítt veri með það að mig verkjaði í augun.

Í kvöld fór ég svo í ræktina í fyrsta skipti í 14 mánuði. Dró Kristófer með mér. Það var mjög gott. Svona gott-vont. Alls ekki eins erfitt og var búinn að búa mig undir. Reyndar þegar ég var búinn að hlaupa á 12 km hraða í 5 mínútur komu svona 20 sek. sem ég hélt ég myndi æla en þar fyrir utan var þetta ekki svo slæmt. Enda tókum við ekki erfiða æfingu.

Þegar ég kom aftur heim í maí brá mér eiginlega að sjá hvað það eru margir sem eru drukkna í eigin spiki hérna. Og gera ekkert í því. Sjálfur skildi ég þetta aðeins betur þegar ég fitnaði um 5 kg á 6 vikum - og fór létt með það. Ég hef ekki hreyft mig síðan ég kom hingað. Maður labbar ekkert nema innan bílastæðisins þar sem maður lagði. Ein hræðileg afleiðing skipulags meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Matarmenning þjóðarinnar er forkastanleg. Hafandi búið í vetur þar sem allt hráefni er ferskt og "hreint" og grænmeti og baunir uppistaða í næringunni fékk ég hálfgert counter-culture shock. Hvað gengur fólki t.d. til með að eyðileggja fisk með að raspa hann? Snakk og sælgæti hafði ég heldur varla borðað nema í smáum einingum í vetur. Keypti mér þó stundum lítinn snakkpoka svona á milli mála. Það voru 10 gr. pokar, 55 kaloríur. Hérna kaupir enginn annað en 200 gr. fjölskyldupoka, 1100 kaloríur - það er 40% dagsþarfar fyrir fullhraustan karlmann. En til að festast ekki í lífsmáta hjarta- og æðasjúkdóma, ónýtra hnjáa og bakverkja ætla ég að taka mig núna á. Búinn að fá nóg af þessu rugli. Framreiknað enda ég annars í 100 kílóum áður en október er liðinn.

Ég fékk bókasendingu frá amazon.co.uk í gær. Þar á meðal var 700 bls. spánnýr doðrant um sögu post-colonial Afríku, skýrsla The Commission For Africa og 2 skólabækur fyrir næsta vetur; önnur um alþjóðapólitík Austur-Asíu, hin um þróunarfræði.

Það má því rigna eldi og brennisteini mín vegna það sem eftir er af "sumrinu". Ég er búinn að hækka á ofnunum í húsinu eftir að hafa skolfið einsog hrísla í kuldanum í gær. Ég á bæði lopapeysu og kaffivél. Ég er með lesefni næstu vikur. Sem er eins gott því samkvæmt spánni verður rigning fram í september. Þá byrjar haustveðrið.
Agust skrifaði kl. 1:26 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

júlí 11, 2005

Versta sumarveður höfuðborgar í heimi

Að eiga heimsmet eru ær og kýr Íslendinga. Einu flagga þeir þó lítið.

Af öllum löndum heimsins, sem af einhverju viti eru byggð, á Ísland verstu höfuðborg heims þegar kemur að sumarveðri.

Með vísan í færslu EOE.is skal t.d. nefna Ulanbatur og Moskvu, þar er meðalsumardagur með hita yfir 20 stig. Íbúar Wellington á Nýja-Sjálandi fá 19 stig að meðaltali þegar hæst er yfir daginn. Í Alaska (og til að gera leikinn meira spennandi viðurkennum við Alaska sem "land") fer meðalhitinn upp í 17-18 stig í þrjá mánuði á ári - sama hvað Velvet Underground segir.

Gott og vel, færum hörku í leikinn og gefur Grænlandi og Færeyjum aukið sjálfstæði. Þar ættu höfuðstaðirnir að veita Reykjavík harða samkeppni í veðurþunglyndinu. Til hægðarauka er tölfræðin sett í mynd:
Þar hafið þið það. Nei, við myndum ekki vinna opna danska nýlendumótið í sumarleysi. Það skal hinsvegar tekið fram að hitinn er meiri yfir daginn í Narsarsuaq sumarmánuðina þrjá en ef tekið er tillit til næturkuldans hefur Reykjavík aftur vinninginn. Svo og tapar Reykjavík fyrir Þórshöfn um hvor höfuðstaðurinn sé blautari.

Ef við hinsvegar sleppum allri aumingjafrændsemi og berum aðeins saman höfuðborgir sjálfstæðra ríkja þá er Reykjavík versta höfuðborg heims til að njóta sumarblíðunnar.

Og fyrst ég er byrjaður, Lundúnarbúar er gjarnir á að kvarta undan rigningunni. Má ég kynna Reykjavik-London, baráttu blautu borganna!

Janúar: Meðalúrkoma í Reykjavík 86 mm - London 79 mm
Febrúar: Reykjavík 74 mm - London 51 mm
Mars: Reykjavík 76 mm - London 61 mm
Apríl: Reykjavík 56 mm - London 53 mm
Maí: Reykjavík 43 mm - London 56 mm
Júní: Reykjavík 46 mm - London 56 mm
Júlí: Reykjavík 51 mm - London 46 mm
Ágúst: Reykjavík 61 mm - London 56 mm
September: Reykjavík 71 mm - London 69 mm
Október: Reykjavík 89 mm - London 74 mm
Nóvember: Reykjavík 84 mm - London 76 mm
Desember: Reykjavík 84 mm - London 79 mm
Reykjavík vinnur með yfirburðum 10-2. Ársmeðaltal er samkvæmt þessu Reykjavík 68,4 mm, London 63 mm. Niðurstaða: Í upphafi sumar er blautara í London, annars er oftar rigning í Reykjavík.

Heimildir: uk.weather.com
Agust skrifaði kl. 22:40 | Comments (5)
Flokkun: Ísland

júlí 07, 2005

Hryðjuverk

Það hlaut að koma að því. Árásir á London. Lítur út fyrir að tala látinna muni ekki vera fjarri 100 þegar uppi er staðið. 38 látnir er staðfesta talan núna.
Tvær af fjórum árásunum gerðust í grennd þar sem Sigga bjó í vetur og fór um á hverjum degi. Þar sem strætóinn var sprengdur í loft upp er lítill almenningsgarður með styttu af Gandhi, sem hún m.a. sýndi mér þegar ég heimsótti hana í vetur. Vagninn sem var sprengdur upp var númer 30 sem var að koma frá Hackney. Þar eru tveir af hverjum þremur íbúum fæddir utan Bretlands og einn af hverjum sex fær fátækrastyrk frá ríkinu. Þar eru töluð tæpleg hundrað tungumál en tyrkneskir og karabískir innflytjendur hafa verið fjölmennastir, auk afrískra á síðustu árum. Þar fyrir utan er hverfið þekkt sem "morðhöfuðborg Bretlands", krakkneyslu og að vera eitt allra fátækasta svæði landsins.
Ekki nóg með að hryðjuverkamennirnir sprengdu upp stætisvagn þar sem friðarboðskapar Gandhis er minnst heldur var ein árásanna gerð á Edgware Road stöðina. Edgware Road hverfið er þekkt sem "Litla Arabía" vegna fjölda Araba sem búa þar. Þar létust sjö vegfarendur.
Að lokum var sprengd sprengja á milli Liverpool Street og Aldgate East.
Ég fékk email frá vinum mínum í London og þau sluppu alveg. Vinkona mín sem er nýbyrjuð að vinna aftur í City var á undan árásunum þegar hún fór um Liverpool Street. Frétti bara af þeim þegar hún kom til vinnu.

Þetta var allt að því fyrirsjáanlegt, því einsog yfirmaður innan Lundúnarlögreglunnar sagði í viðtali fyrir skömmu, spurningin var ekki hvort heldur hvenær árás sem þessi tækist.

Talað er um að G8 fundurinn hafi verið ástæðan fyrir því að árásin var gerð núna. Það er hinsvegar ekki til að mótmæla G8. Frekar að hryðjuverkasellan hafi gripið tækifærið þar sem þúsundir Lundúnalögreglumanna hefur verið fluttur til Skotlands að berjast við sjálfstekið ungt fólk í Che-bolum. Nokkrum sinnum á síðustu 3 árum hafa fréttir borist af því að yfirvöld hafi flett ofan af plotti sem þessu. Hryðjuverkamennirnir hafa hinsvegar att kappi við einhverja þjálfuðustu sveit heimsins í hryðjuverkavörnum.
Agust skrifaði kl. 22:57
Flokkun: Fréttir

júlí 06, 2005

Staðreynd dagsins

George W. Bush og Sylvester Stallone fæddust sama daginn, 6. júlí 1946.
Agust skrifaði kl. 22:07
Flokkun: Ameríka