ágúst 22, 2005
Tvívítt IQ
Ég hef það fyrir reglu að taka ekki "internet-test" en stóðst ekki þetta þegar ég rakst á link á það: The 2-Variable Intuition TestSvona IQ-internet próf er lítið að marka, að sjálfsögðu, en þau eru skemmtileg, finnst mér að minnsta kosti.
Útkoman sem ég fékk var "92% SCIENTIFIC INTUITION and 77% EMOTIONAL INTUITION" (myndrænt). Það á að þýða að gáfur mínar séu meiri en hæfileikar í mannlegum samskiptum. Það var og.
Þetta þýðir víst að í miðað við niðurstöður þessa tiltekna internetsprófs fékk ég "higher than 99% on Scientific" og "higher than 33% on Interpersonal".
Auðvitað hefði ég ekki hafa birt þetta hefði ég fengið lélega útkomu :-)
Agust skrifaði 22.08.05 22:15
Flokkun: Internetið