ágúst 25, 2005
Súpermarkaðir
Í september sest ég að í ensku Miðlöndunum. Hafandi einu sinni áður flutt úr landi veit ég að maður getur aldrei unnið "heimavinnuna" sína of vel. Ef skipulag er mikilvægt fyrir ferðalög er skipulag lífsnauðsynlegt fyrir flutninga.Hvaða strætó á ég að taka? Hvaða símafyrirtæki á ég að skipta við? Hvaða banka? Hvað er að sjá og gera? Hvað kostar að lifa? Hvaða verslanir senda heim? Hvar er ódýrast að leigja bíl ef maður þarf þess einhvern tímann? Allt eru þetta mikilvægar spurningar.
Minn mesti áhugi virðist hinsvegar snúast um matvöruverslanir.
Ég er búinn að leita með "shop locator" verslunarkeðjanna bresku á internetinu, hvaða verslanir eru í mínu nágrenni.
Ég er vonsvikinn með að langt er í næstu stóru Tesco verslun. Engin 24h búð er í nágrenninu en Tesco á campusnum er opin allan sólarhringinn þó, en það er aukaatriði.
Þetta eru niðurstöðurnar í þessu mikilvæga máli:
Næsti súpermarkaður er Iceland! Já, merkilegt nokk. Einmitt eini súpermarkaðurinn sem ég hef aldrei komið inn í í Bretlandi. Frosin vara er einhvern veginn ekki mjög heillandi. En hver veit nema Jón Ásgeir græði nokkrar krónur á mér handan hafsins líka. Sérstaklega þar sem það er innan við kílómetra í hann.
Sainsbury's er í ca 5 mín. göngufjarlægð en hefur takmarkað úrval. M&S er í næstu götu þar hjá. Þar eru reyndar aðallega seld föt og svo er bakarí í búðinni. Lítið á þessum tveimur að græða. Sainsbury's hefur svo alvöru búð sem er stuttri strætóferð frá þar sem ég mun búa.
Asda er líka að finna í verslunarmiðstöð sem hægt er að komast í með einu strætóhoppi. Samt varla þess virði.
Somerfield er með búð sem er svo langt í burtu að ég þyrfti að taka langferðabíl.
Safeway væri hægt að skoða, a.m.k. með stuttu strætóhoppi, spurning hvort maður nennir að labba 3 km með innkaupapoka.
Súpermarkaður súpermarkaðanna Tesco er ekki beint í hverfinu, því miður. Mjög góður Tesco er rétt hjá skólanum og svo er hypermarkaður hinum megin í borginni.
Niðurstaðan er því að ég mun nota Tesco nálægt skólanum á leiðinni heim. Annars Iceland eða local innflytjendabúðina. Það hlýtur að vera Arababúð í hverfinu! Svo sendir Tesco heim í versta falli. Þarf að kynna mér það nánar.
Já, mér leiðast ekki flottar matvöruverslanir.
Agust skrifaði 25.08.05 18:28
Flokkun: Daglegt líf
"Hafandi einu sinni áður flutt úr landi veit ég að maður getur aldrei unnið "heimavinnuna" sína of vel. Ef skipulag er mikilvægt fyrir ferðalög er skipulag lífsnauðsynlegt fyrir flutninga."
Sko, það er gaman að læra mikið um landið, söguna og slíkt. En maður má ekki skipuleggja hlutina of vel. Þegar ég fór í háskóla, þá vissi ég ekkert um úthverfið mitt og eyddi fyrstu dögunum bara á ráfi um, leitandi að matvörubúð. Það var voðalega sjarmerandi að vera svona "lost". Allavegana í minningunni.
Einar Örn skrifaði 25.08.05 18:57Jamm. Það er reyndar ekkert "challenge" í að flytja til Bretlands en þegar maður flytur í "öðruvísi" umhverfi, einsog Egyptaland í mínu tilfelli og Suður-Ameríka í þínu, þá er þetta mjög "hagkvæmt". Ég t.d. sparaði mér að borga "túristaprís" fyrir leigubíla og annað slíkt fyrstu dagana.
Það er vandamálið við að vera "lost". Maður verður fátækari og svengri.
Svo er reyndar bara málið að ég eiginlega get ekki beðið eftir að komast í "alvöru" súpermarkað. Þegar ég kom í fyrsta skiptið í alvöru Tesco búð þá eyddi ég 3 klukkutímum þar. Einsog krakki í leikfangabúð. Þetta var svona 24h búð og ég var þarna rétt fyrir miðnætti á virkum degi og engir aðrir að versla nema vaktavinnandi húsmæður af asískum ættum :)
Já, ég er matvörubúðanörd! :)
Ágúst skrifaði 25.08.05 21:23ég myndi passa mig á heimsendingarþjónustu stórmarkaðanna, ég var einu sinni í matarboði þar sem heilt kvöld fór í að bera saman hryllingssögur af heimsendingarþjónustu Tesco. Sú sem hélt matarboðið hafði pantað ýmislegt fyrir boðið, vín með matnum og svona en það sem hún fékk voru skilaboð þess efnis að viðkomandi vara væri ekki til en hérna væri substitute, Bud Light! Og í staðinn fyrir camenbert fékk hún babybel!
sigga skrifaði 26.08.05 09:00Iceland er einmitt eini breski súpermarkaðurinn sem ég hef komið inn í! :)
Unnur skrifaði 01.09.05 16:00Vicodin
Hydrocodone
Vicodin
hydrocodone
http://rxstore2.rxonlinecenter.net
http://velozona.hobby.ru/wwwboard/strivia/50799.html
Vicodin
Hydrocodone
http://rxstore.rxonlinecenter.net
Hydrocodone
Vicodin
Hydrocodone
Vicodin
http://buy-vicodin.rxonlinecenter.net/
http://vicodin.rxonlinecenter.net/
http://hydrocodone.rxonlinecenter.net/
http://adipex.rxonlinecenter.net/
JÁ! VICODIN!!! ;)
Unnur skrifaði 18.09.05 16:03