september 02, 2005

Síðasti dagurinn

Ég kvaddi álverið í dag. Hef unnið þar í sjö sumur (og rúmlega það). Fimm sumur með meira og minna sama fólkinu.
Ég kveð bæði með gleði og smá söknuði. Hlakka mikið til að takast á við verkefni næsta árs. Á móti er skrítið að þessum kafla sé lokið. Ég kem því ekki einsog vorboði í Straumsvíkina næsta ár.
Hélt nokkuð veglegt "kveðjukaffi" fyrir samstarfsfólkið, þó ég segi sjálfur frá. Salat, húmmus, ostar og kökur. Rúsínan í pylsuendanum var kókosspænir og semsamfræjakökur úr Sælkerabúðinni, sem vakti mikla lukku. Það var ekki laust við að sumir væru þegar farnir að sakna mín.
Það er næsta víst að á næsta vinnustað bíður ekki bollinn minn eftir mér á kaffistofunni.
Agust skrifaði 02.09.05 17:20

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Úr Sælkerabúðinni? Áttu við að þú hafir ekki verslað í heimabyggð? Fuss og svei, ég vona að ostarnir hafi komið úr Ostahúsinu á Strandgötu.

Hjalti skrifaði 03.09.05 13:36

Mér leið nú bara eins og gömlu köllunum...
þegar þeir fara á eftirlaun
labba út og koma aldrei aftur...

Jói skrifaði 05.09.05 14:43