september 20, 2005

Warwick, dagur 1

Kominn til Warwick. Sit inn á herbergi og var að gera mér grein fyrir því að klukkan á tölvunni var klukkutíma á eftir (íslenskur tími), þannig ég þarf að drífa mig.

Var annars að setja inn ferðasögu frá Sýrlandi hérna.

Hef það gott og hef haft það gott. Kvefaður en annars á lífi og vel það.
Agust skrifaði 20.09.05 17:18

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Og já.. það er búið að klukka þig... svo já... klukk

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 22.09.05 19:02

Hér eru fimm ástæðurnar þínar...

1.
Ég borða ekki svínakjöt. Og sakna nautabacons og -áleggs frá Egyptalandi.

2.
Ég drakk áður Pepsi Max í lítravís hvern dag en hef núna ekki drukkið gos (utan sódavatns) í rúm 2 ár.

3.
Fyrsta íbúðin sem ég leigði var á eyju í ánni Níl. Önnur íbúðin sem ég leigði var í Mohandiseen hverfinu vestan megin við ánna í Kaíró. Þriðja íbúðin sem ég leigi er í Coventry!

4.
Þangað til fyrir einu og hálfu ári síðan hafði ég ekki ferðast í næstum þrjú ár. Síðan þá er ég búinn að sækja heim 11 lönd og eitt svæði undir stjórn Sameinuðu þjóðanna (og flytja tvisvar út, ef út í það er farið).

5.
Ég skráði mig úr Sjálfstæðisflokknum fyrir 2 árum síðan. Það var tímanleg ákvörðun. Annars er ég aðallega á ská í pólitík held ég. Góður maður velti eitt sinn spurningunni hvort ég væri hægrisinnaðasti vinstrimaður á Íslandi eða vinstrisinnaðasti hægrimaðurinn. Ef eitthvað er, þá held ég að ég sé frekar hið fyrra. Hafandi sagt það þá er ég óhræddur að skipta um skoðun. Það hefur samt blessunarlesa forðað mér frá þeirri firru að kjósa Samfylkinguna. Ég braut hinsvegar odd á oflæti mínu og kaus Ólaf Ragnar til varnar lýðræðinu í fyrra.
Ágúst | Homepage | 09.23.05 - 2:24 am | #

Strumpurinn skrifaði 23.09.05 08:50

Hvar er Hjalti...

HVAR ERT ÞÚ, Ágúst...

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 30.09.05 15:49

Eg er her!

Mer leidist ad skrifa a islensku med oislensku lyklabordi. Eg er ekki kominn med internet heima og reyni ad nota timann tegar eg er a campusnum i tad allra naudsynlegasta.

Fyrir utan ad eg hef verid mjog upptekinn undanfarid.

Agust skrifaði 30.09.05 15:54

Skrifaðu þá útlensku á útlenska lyklaborðið! og svo skilst mér að Þórir eigi tímavél....

Vera skrifaði 03.10.05 10:10