september 20, 2005

Warwick, dagur 1

Kominn til Warwick. Sit inn á herbergi og var að gera mér grein fyrir því að klukkan á tölvunni var klukkutíma á eftir (íslenskur tími), þannig ég þarf að drífa mig.

Var annars að setja inn ferðasögu frá Sýrlandi hérna.

Hef það gott og hef haft það gott. Kvefaður en annars á lífi og vel það.
Agust skrifaði kl. 17:18 | Comments (5)
Flokkun: Daglegt líf

september 07, 2005

Kifaiyah

Stór dagur í dag. Forsetakosningar í Egyptalandi í fyrsta skipti og Davíð hættir í pólitík.

Útkomuna sáu flestir fyrir. Þetta var allt spurning um tímasetningu. Múbarrak verður áfram forseti en núna "lýðræðislega kjörinn". Davíð hættir og Geir tekur við. Allt samkvæmt bókinni.

Það kemur sjálfsagt fleirum en mér á óvart hinsvegar að Davíð ætli í Seðlabankann. Altso, á óvart þangað til að þrjúfréttir Ríkisútvarpsins fluttu stutta fréttatilkynningu um að "Birgir Ísleifur Gunnarsson, [hafi] tilkynnt forsætisráðherra að hann óski að láta af störfum frá og með 1. október nk. og [hafi] ráðherra fallist á beiðni hans".

Að EKG sé kominn af varamannabekknum í ríkisstjórn var jafn mikið sjokk og að Geir verði eftirmaður Davíðs. Að Árni Matt verði fjármálaráðherra (líkt og faðir hans raunar var í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar) kemur þannig lagað ekki mikið á óvart. Spurning hinsvegar hvort hann fái heillaóskaskeyti frá Áströlum.

Ég verð þó að segja fyrir mitt leyti, fram að þrjúfréttum hefði ég ekki spáð þessari útkomu. Fannst að eftir þennan glæsilega feril væri Seðlabankinn lítið spennandi fyrir Davíð.
Agust skrifaði kl. 15:49 | Comments (2)
Flokkun: Stjórnmál

september 02, 2005

Síðasti dagurinn

Ég kvaddi álverið í dag. Hef unnið þar í sjö sumur (og rúmlega það). Fimm sumur með meira og minna sama fólkinu.
Ég kveð bæði með gleði og smá söknuði. Hlakka mikið til að takast á við verkefni næsta árs. Á móti er skrítið að þessum kafla sé lokið. Ég kem því ekki einsog vorboði í Straumsvíkina næsta ár.
Hélt nokkuð veglegt "kveðjukaffi" fyrir samstarfsfólkið, þó ég segi sjálfur frá. Salat, húmmus, ostar og kökur. Rúsínan í pylsuendanum var kókosspænir og semsamfræjakökur úr Sælkerabúðinni, sem vakti mikla lukku. Það var ekki laust við að sumir væru þegar farnir að sakna mín.
Það er næsta víst að á næsta vinnustað bíður ekki bollinn minn eftir mér á kaffistofunni.
Agust skrifaði kl. 17:20 | Comments (2)
Flokkun: Daglegt líf