október 16, 2005

Bob Dylan

Ég var rétt í þessu að bóka miða á Bob Dylan í Birmingham í nóvember.

Það var búið að vera uppselt á tónleikana í þónokkurn tíma en núna opnuðu þeir fyrir síðustu tvær "blokkirnar", sem eru sitthvoru megin við sviðið (þannig að maður sér næstum "aftan á" hljómsveitina. Það er ekki endilega verra, þar sem maður er eiginlega eins nálægt og hægt er að vera.

Verst að við erum fimm að fara en verðum sitthvoru megin við sviðið (fengum ekki miða saman).

Aðalatriðið er að ég á tónleika með BOB DYLAN :-)
Agust skrifaði 16.10.05 18:41

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Heill og sæll Ágúst.

Vonandi að allt gangi vel hjá þér í Bretlandi, því góða landi. Eitt mættiru vera duglegri við og það er að skrifa á síðuna, annars gætiru átt það á hættu að ég fljúgi út til þess að afla frétta.

Með kveðju.

Stefán Einar Stefánsson skrifaði 19.10.05 12:02

Já ég tek undir það... skrifaðu meira á síðuna... svona daglegs lífssögur eru mjög áhugaverðar fyrir okkur frónbúa...

og skemmtu þér vel á Dylan...

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 20.10.05 00:55

Til hamingju með það! Láttu bara ekki koma þér á óvart hversu ónýt röddin hans er orðin.

Einar Örn skrifaði 24.10.05 14:28

Veit ekki hvort menn eigi að láta það koma sér á óvart. Það er líka sjarmi yfir því. Var á Pavarotti tónleikum fyrr í haust og það var einhver þáttur í prógramminu að röddin væri farin að gefa sig.

Stefán Einar Stefánsson skrifaði 25.10.05 00:33