október 25, 2005
Espresso vél
Ég gafst að lokum upp á að krækja mér í espressovél á kostakjörum í gegnum eBay og pantaði mér Saeco Vienna Nero vél, al-sjálfvirka og alles.Slíkar vélar eru hræðilega dýrar en ég réttlæti kaupin með því að ég ætli að selja hana að ári. Miðað við fyrri reynslu af slíkum fyrirætlunum endar hún samt ofan í ferðatösku. Það gæti reyndar verið hægara sagt en gert, þar sem hún vegur víst 15 kg!
Hin, og ökónómískari, rökin eru að kostnaður minn við að kaupa mér kaffi (labba út á lestarstöð til þess eða kem þar við á leiðinni í strætó, eftir því hvort það er "skóladagur" eða ekki) er líklegast að meðaltali 3-4 pund á dag, eða a.m.k. 20-25 pund á viku. Það tekur því ekki margar vikur að vinna upp kostnaðinn við kaupin.
Svo er bara hægt að gefa ansi mikið fyrir að geta fengið sér kaffi án þess að þurfa að bæði klæða sig og ganga götuna á enda til þess.
Annars er ég orðinn ÓGEÐSLEGA GÓÐUR í Sudoku. Það var og.
Agust skrifaði 25.10.05 16:58
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Mér finnst röksemdafærslan þín vera fullkomlega sannfærandi :-) Til hamingju með nýju kaffivélina!
Kristján skrifaði 25.10.05 18:17Til lukku með gripinn ;-)
vera skrifaði 25.10.05 19:53