október 30, 2005
BST-GMT
Í nótt breyttu Bretar klukkunni. Annar klukkutími sólarhingsins var endurtekinn, mínútu eftir 1:59 BST varð klukkan 1:00 GMT.Þegar ég vaknaði klukkan 9:00 BST við vekjaraklukkuna hugsaði ég með mér að það væri nú svosem allt í lagi að kúra aðeins lengur, þar sem klukkan væri í raun átta á sunnudagsmorgni. Þannig ég slökkti á vekjaraklukkunni og vaknaði svo klukkan að ganga tólf (GMT).
Ég sannarlega nýtti því klukkutímann sem íbúar í landi hennar hátignar fengu aukalega í dag til að sofa út - þrisvar, fjórum sinnum.
Annars er það helst að frétta héðan að forsíða Sunday Telegraph segir frá því að prins Karl ætli að tala máli múslima þegar hann hittir Bush Bandaríkjaforseta í opinberri heimsókn sem hann er að fara vestur um haf. Þetta er fyrsta opinbera heimsóknin erlendis sem Kamilla fylgir honum. Upphaflega planið var víst að heimsækja vinalegra Kanada en ríkisstjórnin vildi ekki fá þau svona nálægt kosningum þar. Að sjálfsögðu er breska pressan búin að velta sér upp úr því hvort að Bandaríkjamenn muni tala Kamillu fagnandi, þar sem Díana var víst elskuð og dáð þar vestra (að því er virðist m.v. umfjöllunina aðallega fyrir að hafa dansað í opinberri heimsókn í Hvíta húsinu 1985 við þá útbrunninn annars flokks leikara að nafni John Travolta).
Agust skrifaði 30.10.05 13:33
Flokkun: Daglegt líf