október 31, 2005
Enskt al-Jazeera
New York Times (sem ég hef ekki lesið vikum saman vegna internetleysis) fjallar um enskumælandi sjónvarpsstöð sem hin arabíska al-Jazeera ætlar að setja á laggirnar fljótlega. Riz Khan frá CNN og David Foster frá Sky News eru meðal þeirra sem al-Jazeera hefur "keypt" yfir á nýju stöðina. En hvernig mun þeim ganga að selja stöðina til áhorfenda? Og ekki síður mikilvægt, hvernig munu auglýsendur taka sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum? Sjá: The Selling of Al Jazeera TV to an International MarketSunnudagskvöld í Coventry
Í kvöld þurfti ég að skreppa á bókasafnið til að skila bókum og ljósrita einn kafla. Á leiðinni heim hitti ég Hariz sem býr í húsinu í strætónum.Endaði í þriggja tíma löngu samtali um allt milli múslimskra samtaka utan og innan Bretlands til málefna Punjabs.
Hariz er doktornemi í tölvunar/stærðfræði og í senn praktiserandi og vel lesinn múslimi. Við deilum augljóslega áhuga á íslam en frá mjög ólíku sjónarhorni auðvitað.
Mjög áhugavert samtal og ég held að ég hafi alveg lært jafn mikið, ef ekki meira, af því einsog að klára að lesa bókina sem ég ætlaði að gera þegar ég kæmi heim.
Ein ástæðan fyrir því af hverju mér finnst "gott af að búa í Coventry". Múltikúltúrismi er kannski ekki aðalsmerki borgarinnar í heild en í húsinu mínu býr fólk af allskonar þjóðernum.
október 30, 2005
BST-GMT
Í nótt breyttu Bretar klukkunni. Annar klukkutími sólarhingsins var endurtekinn, mínútu eftir 1:59 BST varð klukkan 1:00 GMT.Þegar ég vaknaði klukkan 9:00 BST við vekjaraklukkuna hugsaði ég með mér að það væri nú svosem allt í lagi að kúra aðeins lengur, þar sem klukkan væri í raun átta á sunnudagsmorgni. Þannig ég slökkti á vekjaraklukkunni og vaknaði svo klukkan að ganga tólf (GMT).
Ég sannarlega nýtti því klukkutímann sem íbúar í landi hennar hátignar fengu aukalega í dag til að sofa út - þrisvar, fjórum sinnum.
Annars er það helst að frétta héðan að forsíða Sunday Telegraph segir frá því að prins Karl ætli að tala máli múslima þegar hann hittir Bush Bandaríkjaforseta í opinberri heimsókn sem hann er að fara vestur um haf. Þetta er fyrsta opinbera heimsóknin erlendis sem Kamilla fylgir honum. Upphaflega planið var víst að heimsækja vinalegra Kanada en ríkisstjórnin vildi ekki fá þau svona nálægt kosningum þar. Að sjálfsögðu er breska pressan búin að velta sér upp úr því hvort að Bandaríkjamenn muni tala Kamillu fagnandi, þar sem Díana var víst elskuð og dáð þar vestra (að því er virðist m.v. umfjöllunina aðallega fyrir að hafa dansað í opinberri heimsókn í Hvíta húsinu 1985 við þá útbrunninn annars flokks leikara að nafni John Travolta).
október 28, 2005
The Way to San Jose
Ég var að fá svar frá einum af prófessorunum mínum við ritgerðarefnum sem ég bar undir hann (ég á að skila inn titlinum á ritgerðinni eftir tæpar tvær vikur en ritgerðinni sjálfri í febrúar). Þetta er 5000 orða ritgerð (önnur af tveimur í hverjum valkúrsi) og sendi ég honum email með þremur efnistillögum.Svarið sem ég fékk við einni af tillögunni var
NO WAY JOSE.Og hafið í huga að þetta er lang "alvarlegasti" akademíkerinn sem kennir mér. Ég er eiginlega alveg orðlaus...
október 25, 2005
Espresso vél
Ég gafst að lokum upp á að krækja mér í espressovél á kostakjörum í gegnum eBay og pantaði mér Saeco Vienna Nero vél, al-sjálfvirka og alles.Slíkar vélar eru hræðilega dýrar en ég réttlæti kaupin með því að ég ætli að selja hana að ári. Miðað við fyrri reynslu af slíkum fyrirætlunum endar hún samt ofan í ferðatösku. Það gæti reyndar verið hægara sagt en gert, þar sem hún vegur víst 15 kg!
Hin, og ökónómískari, rökin eru að kostnaður minn við að kaupa mér kaffi (labba út á lestarstöð til þess eða kem þar við á leiðinni í strætó, eftir því hvort það er "skóladagur" eða ekki) er líklegast að meðaltali 3-4 pund á dag, eða a.m.k. 20-25 pund á viku. Það tekur því ekki margar vikur að vinna upp kostnaðinn við kaupin.
Svo er bara hægt að gefa ansi mikið fyrir að geta fengið sér kaffi án þess að þurfa að bæði klæða sig og ganga götuna á enda til þess.
Annars er ég orðinn ÓGEÐSLEGA GÓÐUR í Sudoku. Það var og.
október 16, 2005
Bob Dylan
Ég var rétt í þessu að bóka miða á Bob Dylan í Birmingham í nóvember.Það var búið að vera uppselt á tónleikana í þónokkurn tíma en núna opnuðu þeir fyrir síðustu tvær "blokkirnar", sem eru sitthvoru megin við sviðið (þannig að maður sér næstum "aftan á" hljómsveitina. Það er ekki endilega verra, þar sem maður er eiginlega eins nálægt og hægt er að vera.
Verst að við erum fimm að fara en verðum sitthvoru megin við sviðið (fengum ekki miða saman).
Aðalatriðið er að ég á tónleika með BOB DYLAN :-)
október 12, 2005
Warwick, 4. vika
Ju, eg er enn a lifi. Hef tad gott en mikid ad gera.Fjolskyldan kom i heimsokn um helgina, sem var anaegjulegt, og for a manudagskvoldi. En tad thyddi jafnframt ad eg las ekkert um helgina og var tvi frekar illa undirbuinn undir timana i vikunni.
Timinn flygur fra manni og mer finnst alveg stormerkilegt ad oktober se ad vera halfnadur!
Eg er ordinn hinn versti Su Doku fikill og nenni ekki lengur ad leysa tessar "audveldu". Leysti killerinn i The Times i sidustu viku, geri adrir betur.
Og eg fer ad sofa a laugardagskvoldum fullur tilhlokkunar ad vakna a sunnudagsmorgnum, fara ut i WHSmith a lestarstodinni, tegar teir opna klukkan tiu, kaupa sunnudagsblodin og storan kaffibolla (sem er her um bil halfur litri liklegast) og lesa blodin fram til svona eitt tegar eg fer ad lesa fyrir vikuna.
Eg held ad besta "raunveruleikamomentid" hingad til hafi verid tegar eg sat i straeto og las Marxist Theories of Imperialism: A Critical Survey med gedfatlada konu a moti mer sem taladi vid sjalfa sig um sidleysi heimsins. Og eg sem helt ad Kairo hefdi verid langt skref fra HR!