nóvember 02, 2005
Önnur afsögn Blunketts
David Blunkett hefur núna sagt af sér í annað skiptið. Það má ýmislegt segja um þann pólitíkus en það verður segjast að ekki er annað hægt en að dást svolítið að honum. Hann er einn af þeim fáu karakterum í pólitík sem hægt er að finna til aðdáunar um leið og maður er hjartanlega ósammála honum og finnst viðkomandi ganga út fyrir allan þjófabálk.Channel 4 sýndi satíru á samband Blunketts við ritstjóra íhaldstímaritsins Spectator, hverja hann barnaði og varð til þess að hann sagði af sér í fyrra skiptið. Þar var hann hafður að háði og spotti en líkt og einhver orðaði það, maður gat ekki annað en fundið til með honum. Blindur lágstéttarstrákur frá Sheffield sem reis til hæstu metorða í pólitík með blindrahund og ódrepandi trú á eigin getu.
Hann var fyrst menntamálaráðherra 1997, síðan innanríkisráðherra frá 2001 til afsagnar fyrir ári síðan og síðan í sumar ráðherra atvinnu og almannatrygginga. Fyrst átti hann í höggi við kennarasambandið, heimtufrekar stúdentahreyfingar og þurfti að berja skólagjöld í gegn á móti miklum mótbyr. Sem innanríkisráðherra lokaði hann meinta hryðjuverkamenn inni í nafni hertra laga. Næsta verkefni átti að vera að berja í gegn breytingar á almannatryggingakerfinu. Þar var hann á heimavelli. Sem þingmaður hefur hann sagt fólki sem kvartaði undan litlum bótum að hætta að væla og reyna frekar að gera eitthvað í sínum málum. Offitusjúklingi sagði hann að hreyfa sig til tilbreytingar (og var því gerð góð skil í satíru Channel 4). Þegar hann heyrði fréttir af því að morðóði læknirinn Shipman hafði kálað sér í klefa sínum sagði hann við litla hrifningu að það væri ráð að skála fyrir því.
Hann var einhvern veginn stjórnmálamaður sem hægt var að vera algjörlega á móti en hrífast að um leið fyrir að vera svo óhefðbundinn og laus við spindoktorsyfirbragð Blair-stjórnarinnar. Á endanum var það þó dómgreindarleysi sem varð honum að falli, nokkuð sem hann á e.t.v. einna mest sameiginlegt með kollegum sínum í ríkisstjórninni.
Agust skrifaði 02.11.05 12:28
Flokkun: Stjórnmál