nóvember 04, 2005

The Battle of David

Auðvitað gat ég ekki staðist að horfa á kappræður á milli Davíðanna tveggja á Question Time á BBC1.

Að minnsta kosti ef maður hlustaði á það sem þeir voru að segja verð að ég að segja, undrandi, að David Davis kom talsvert betur út úr þessum kappræðum.

Það verður gaman að sjá hvað blöðin segja á morgun um þetta. Kæmi mér samt ekki á óvart að dómurinn yrði "Cameron er ungur, Davis er gamall".

Gamall karlskruggur átti líklegast bestu lýsinguna, rétt undir lokin á umræðunni. Hann sagði að Cameron væri ótrúverðugur og svaraði aldrei hvernig hann ætlaði að gera hlutina.

Hálf-neyðarlegt var þegar Davis svaraði á mjög reffilegan hátt að þessi kosning væri ekki um mögulega fíkniefnanotkun á námsárunum, þegar spurning kom úr salnum í þá átt. Cameron hefði betur svarað í einni setningu en þess í stað endurtók hann alla gömlu lummuna sína, í stað þess að segja að málið væri dautt einsog Davis í raun og veru sagði.

Ekki það að Evrópustefna Davis er hræðilega barnaleg, sérstaklega komandi frá fyrrverandi utanríkisráðherra. Hann kom samt betur út. Merkilegt nokk.
_ _ _ _ _ _ _ _

Nú segja þeir að samkvæmt könnun sem gerð hefur verið þótti yfir 60% Davis hafa staðið sig betur.
Agust skrifaði 04.11.05 00:57

Flokkun: Stjórnmál
Comments

Já... ég hef persónulga litla trú á mönnum sem fá eitthvað þvílíkt búst út úr því að vera mælskir í pontu eins og Cameron fékk um daginn...

mælskir menn hafa iðulega reynst mannkyninu illa...

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 04.11.05 01:17

Einhver mælskasti maður sem ég hef kynnst er Steingrímur J. Sigfússon.

Annars þakka ég Ágústi góða pistla, manni líður einhvern veginn betur þegar maður kemur að nýjum pistlum á þessari síðu.

Stefán Einar Stefánsson skrifaði 07.11.05 13:06