nóvember 08, 2005

London's calling

Kristófer er búinn að vera í London að auka hagnað bankana í vikunni. Og auðvitað sleppur hann ekki aftur úr landi nema kíkja fyrst í heimsókn. Við erum að skipuleggja núna að hann komi hingað upp eftir til að sjá staðinn og svo ætla ég með honum til London og vera einn dag áður en hann flýgur heim. Ágætt fyrirkomulag, ég hef í sjálfu sér ekki komið til London (nema lestast þar í gegn) síðan í vor og hálf bjánalegt að hafa ekki kíkt þangað ennþá síðan ég kom. Þetta er því góð afsökun til að kaupa lestarmiða og skella sér í smá "menningarferð".

Á móti er það líka skemmtilegt að sýna Kristófer litla Bretland hérna í Coventry. Bara spurning hvort ég næ að draga hann á sushi staðinn góða í B'ham... það má allavega reyna :)
Agust skrifaði 08.11.05 16:58

Flokkun: Daglegt líf