nóvember 18, 2005

Getraun dagsins

Spurt er: Hvaða staða fer að losna og hvar?

Mér dettur helst í hug að Friðrik Sófusson sé að hætta hjá Landsvirkjun. Sigríður Dúna var jú skipuð sendiherra fyrir skömmu og mun taka við nýju sendiráði í Suður-Afríku 1. júní 2006. Flugið til Pretoríu frá London er minnir mig 11-12 tímar. Mér finnst þetta því ógalin kenning.
Agust skrifaði 18.11.05 17:29

Flokkun: Ísland
Comments

Ég tel ólíklegt að Friðrik hætti fyrr en eftir ár eða svo. Hann mun að minnsta kosti bíða í þann tíma.

Það munu tvær hæstaréttardómarastöður losna á næsta ári, jafnvel strax í upphafi árs og það verður spennandi að sjá hverjir koma þar inn.

Stefán Einar Stefánsson skrifaði 21.11.05 11:08

Já, þótt ýmislegt megi segja um skipanir í hæstarétt síðust misseri, þá efast ég um að það finnst svo hugmyndaríkur plottari í stjórn landsins að rökstyðja það að Alfreð eigi heima þar :)

En að öllu gamni slepptu, þá skal ég ekki segja hvenær þetta verður en einhvern veginn sé ég fyrir mér að Alfreð fari yfir í Landsvirkjun. Raunar er ekki ólíklegt að það gerist að u.þ.b. ári liðnu.

Ágúst skrifaði 21.11.05 18:58

Sæll Ágúst,

nei það er rétt. Ég hugsa að Alfreð komist seint inn í Hæstarétt. En ég efast um að Sjálfstæðismenn hleypi framsóknarmanni inn í forstjórastöðuna í Landsvirkjun. Þeir hafa stjórnarformanninn og ég hugsa að svo verði áfram. Það eru margir aðrir kandídatar sem eru líklegir til þess að taka við af Friðrik.

Stefán Einar Stefánsson skrifaði 22.11.05 17:34