nóvember 20, 2005

Flugeldaóð borg

Þjóðverjar jöfninu stóra hluta Coventry við jörðu með sprengjuárásum í seinna stríði. Síðan þá virðast borgarbúar hafa komist yfir alla komplexa varðandi sprengingar. Ég hef aldrei vitað jafn sprengjuglatt fólk. Flugeldum er skotið á loft, sem flestir virðast vera af þeirri gerð sem er ætlað að skapa sem mestan hávaða, ekki ljósadýrð, við öll tækifæri. Rétt einsog margir aðrir Englendingar sprengja þeir til að fagna því í byrjun nóvember þegar kaþólikkum mistókst að sprengja þingið í loft upp 1605. Þeir sprengja flugelda þegar Coventry vinnur í fótbolta, þegar einhver á afmæli eða bara þegar þeim dettur í hug.

Og núna heyri ég ekki sjálfum mér hugsa því sprengjugnýrinn frá miðbænum er svo hávær. Núna er verið að fagna komu jólanna. Þokan er of þykk til að sjá hvort þetta séu sérstakir jólaflugeldar (ég sé ekki kirkjuturnana í 800 m. fjarlægð, svo þykk er þokan). Þeir virðast hinsvegar vera rauðir margir hverjir.

Ég fór áðan í búðina að kaupa í matinn og miðbærinn var þá fullur af fólki að horfa á jólaskrúðgöngu og skemmtiatriði. Minnti á 17. júní í tveggja gráðu frosti. Gasblöðrusalar og dansatriði við ömurlega tónlist. Sinn er hver siðurinn, o.s.frv.
Agust skrifaði 20.11.05 17:15

Flokkun: Daglegt líf