nóvember 24, 2005

Ghost Town

Finnst einhvern veginn löngu kominn tími á að setja hérna inn textann við Ghost Town, lagið sem heimamennirnir í The Specials sömdu um "heimabæ" minn núverandi.
This town, is coming like a ghost town
All the clubs have been closed down
This place, is coming like a ghost town
Bands won't play no more
too much fighting on the dance floor

Do you remember the good old days before the ghost town?
We danced and sang, and the music played in a de boomtown

This town, is coming like a ghost town
Why must the youth fight against themselves?
Government leaving the youth on the shelf
This place, is coming like a ghost town
No job to be found in this country
Can't go on no more
The people getting angry

This town, is coming like a ghost town [x4]
Annars voru liðin 15 ár frá því í fyrradag að frú Thatcher sagði af sér sem forsætisráðherra. Þess var að vonum minnst í fréttum og umræðuþáttum en nær enginn þorir að minnast afreka hennar fyrir breska hagkerfið nema þá í formi verkfalla og blóðtaka fyrir iðnaðarhéruð landsins. Hatur þjóðarinnar í garð þeirrar gömlu er með ólíkindum ef horft er til þess að hefði ekki verið fyrir hana væru svæði einsog borgirnar hér í V-Miðlöndunum í enn verri, krónískri kreppu, sem hefði komið seinna en sú sem gekk hér yfir í stjórnartíð hennar, en hefðu þess í stað verið dýpri og verri. Sú gamla var ekki fullkomin, frekar en aðrir stjórnmálamenn. En á sama tíma og samfélagið nær neitar henni um réttmæta arflegð situr einhver undirförlasta ríkisstjórn landsins á okkar tímum í Westminster.
Hver segir að spinnið borgi sig ekki, þegar allt kemur til alls.
Agust skrifaði 24.11.05 16:33

Flokkun: Menning
Comments

Frú Tatcher var einhver sú versta bölvun sem á bresku þjóðinni hefur dunið eftir stríð...

hennar slæma minning er fyllilega verðskulduð.

Svo gef ég lítið fyrir "ef hún hefði ekki þá hefði það orðið verra". Þær fáu jákvæðu breytingar sem hún kom til leiðar voru því sem næst alltaf gerðar á óþarflega átakamikinn hátt. Sambærilegar breytingar hafa verið gerðar í öðrum löndum og hafa yfirleitt gengið mun betur enda hafa þar yfirleitt verið stjórnendur sem líta ekki á hroka og yfirgang sem hina einu réttu lausn.

En ég er ekki beint mikill aðdaáandi hans Blairs heldur... þú mátt alveg svara þessu kommenti mínu... en ég efast stórlega um að ég muni nenna því að svara því... að rökræða um "mannkosti" Thatcher! Þá vil ég frekar tala um ástand rækjustofnsins á Ísafjarðardjúpi...

Strumpakveðjur :)

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 24.11.05 18:20