nóvember 26, 2005

Fregir af dauðdaga

Í gær lést George Best. Hann var þekktastur fyrir að vera glaumgosi og fyllibytta sem drakk sig í gegnum tvær lifrar. Hann var 59 ára gamall.

Fregir af dauðdaga hans hafa verið í hverjum fréttatíma hérna í Bretlandi dögum saman. Gott ef ekki síðan í síðustu viku. Kannski það sé til marks um "selebritívæðingu" samfélagsins? Sonur hans tilkynnti þjóðinni andlátið, sem raunar var búið að tilkynna af læknum Best sólarhring áður (og fréttin "George Best liggur fyrir dauðanum" var búin að vera endurtekin dag eftir dag). Sonurinn hefur fetað í fótspor föðurs síns sem þekktur glaumgosi. Hámark ferils hans var að koma fram í raunveruleikasjónvarpsþætti fyrir nokkrum misserum ásamt öðru fólki sem hefur lífstíl sinn að viðurværi.
Agust skrifaði 26.11.05 22:38

Flokkun: Fréttir , Menning
Comments

Frumskilyrðið fyrir því að hann varð glaumgosi var snilligáfa hans á vellinum. Reyndar ekkert sem þú hefur minnsta áhuga á.

JBJ skrifaði 27.11.05 03:09

Hann var þekktastur fyrir að vera besti knattspyrnumaður Bretlandseyja fyrr og síðar.

Björn Friðgeir skrifaði 27.11.05 08:46

Pitch perfect

JBJ skrifaði 28.11.05 11:17

Hann var ekki celebreti (haha, ég svo fyndin!) heldur þjóðhetja Ágúst minn! Meira að segja ég veit þetta! ;)

Unnur skrifaði 01.12.05 13:50