desember 12, 2005
Örsaga
Einu sinni var skrifstofumaður sem vann í opnu rými. Hann hafði tekið sér langt sumarfrí og haft það náðugt út á landi í kyrrðinni í rúman mánuð.Síðan var komið að því að hann mætti til vinnu snemma morguns og settist við borðið sitt og reyndi að slá inn notandaheiti og lykilorð. En ekkert gekk.
Hann tók því upp símann og hringdi. Hann kynnti sig og ræddi svo um hve náðugt hann hafði það fyrir austan. En heyrðist svo segja:
Heyrðu... en nú er illt í efni get ég sagt þér. Ég er hræddur um að ég hafi gleymt lyklaborðinu mínu í sumarfríinu.
Agust skrifaði 12.12.05 01:39
Flokkun: Óflokkanlegt
Comments
Fliss! :) Er það gott eða slæmt að maður hafi verið lengi að fatta þennan djók?
Unnur skrifaði 14.12.05 15:37;-)
Ágúst skrifaði 15.12.05 01:33