desember 13, 2005

Óskalisti jólanna

Óskalistinn mín fyrir þessi jólin er eftirfarandi.

Ég vil
  • ekkert reykt eða af svíni um jólin,
  • að það verði ekki of kalt,
  • að fólk hætti að kaupa flugelda,
  • að fólk gefi a.m.k. 1% af árslaunum sínum til góðra málefna og hafi sem reglu framvegis (semsagt 10.000 kr. per milljón),
  • fá steik á jólunum (einsog vinur minn sem er kvæntur grænmetisætu og borðar þess vegna alltaf nautalund á aðfangadag),
  • gott rauðvín með steikinni,
  • klára fyrsta uppkastið að báðum ritgerðunum sem ég þarf að skrifa,
  • hitta vini mína og fjölskyldu,
  • að allar jólagjafirnar sem áttu að koma í póstinum í dag komi í fyrramálið áður en ég fer með lestinni af stað [kom! :)],
  • góða ferð heim,
  • koníak í vélinni,
  • engan snjó fyrr en ég er farinn aftur,
  • og frið á jörð.

Agust skrifaði 13.12.05 00:27

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Friður á jörðu var því miður uppseldur....

en ég gat reddað fínum díl á "friður á vesturlöndum og bara einhverjir múslimar að drepast"?

svo var eitthvað Kalt stríð til líka... en það er náttúrulega ekki í tísku lengur...

Sáttur?

Strumpakveðjur :)

Strumpurinn skrifaði 19.12.05 09:49

Svo framarlega sem þú ferð ekki að gefa mér Stríð og frið, er þetta í lagi. "200 blaðsíðu reglan" manstu ;)

Ágúst skrifaði 19.12.05 10:03