desember 17, 2005
Bréf frá Útlendingastofnun
Mér barst boðsent bréf frá Útlendingastofnun í morgun.Hr. Ágúst FlygenringÉg hef því leitað pólitísks hælis í Bretlandi. Vegna hertra skilyrða um hæli þar hef ég einnig reynt að finna hæli annars staðar.
[Heimilisfang]
Með tilvísun í f. lið 7. greinar laga númer 136 frá 1998 tilkynnir Útlendingastofnun yður að vegabréf yðar verður afturkallað frá og með 31. desember 2005 ef þér talið ekki um innan sjö daga hve spenntur þér séuð yfir sigri Unnar Birnu í Ungfrú heimur.
Unnur Birna hefur verið „landi og þjóð til sóma“, líkt og komið hefur fram í tilkynningu forsætisráðherra. Þér hafið ekki tekið undir þessi orð sem skyldi og því hefur Útlendingastofnun verið falið að afturkalla vegabréf yður og annarra íslenskra þegna sem ekki hafa tekið þessum tíðindum með tilheyrandi þjóðarstollti.
f.h. Útlendingastofununar
[Undirskrift, nafn og starfstitill]
Agust skrifaði 17.12.05 14:46
Flokkun: Ísland