desember 19, 2005

Held ég gangi heim

Ég hef hingað til aldrei skilið hvers vegna Jói vinur minn hefur a.m.k. tvisvar gengið úr bænum heim til sín í Hafnarfjörðinn. Hingað til.

Á fimmtudaginn fór ég með gömlu NFVÍ stjórninni á jólahlaðborð. Árlegur og góður siður.
Ég fór á bíl og var á báðum áttum hvort ég ætti að leggjast út í þau útgjöld sem rauðvín með matnum hefur í för með sér.
Lagði bílnum á stóra bílastæðið fyrir framan Bæjarins beztu og keypti engan miða, enda nýkominn til landsins og ekki með túkall í klinki.
Rauðvínsglösin urðu tvö og bjórarnir tveir og leigubíllinn skilaði mér heim fyrir svipaða krónutölu og veigarnar höfðu kostað. Sem er eitthvað sem maður er svosem vanur.
Ég gat ekki sótt bílinn fyrr en í eftirmiðdaginn á föstudeginum og biðu mín þá tvær sektir, upp á 1500 kr. hvor.

Það einkennilega, fyrir utan að hægt er að sekta mann á 3ja tíma fresti, sem ég vissi ekki, er að ef ég hefði lagt upp á gangstétt hefði ég aðeins þurft að borga 2500 kr. (aðeins ein sekt á sólarhring), svo framarlega sem bílinn hefði ekki verið dreginn í burtu auðvitað.

Tvö rauðvínsglös og tveir bjórar komu því út á um átta þúsund krónur í þetta skiptið (2500+2500+3000), sem er einmitt svipað og ég borgaði í leigu á mánuði þar sem ég bjó fyrir ári síðan.
Ætli þeir taki víxla við frá LÍN?
Agust skrifaði 19.12.05 12:13

Flokkun: Daglegt líf
Comments

þetta var einmitt á þeim tíma sem fjárráð leifðu ekki leigubíl
en ég komst aldrei alla leið, bara mislangt áður en ég náði að húkka mér far, lengst komst ég að bæjarmörkum Garðabæjar

Jói skrifaði 21.12.05 17:02