desember 30, 2005
20 Súdanir drepnir af egypsku lögreglunni - í gamla hverfinu mínu
Það er ekki laust við að mér hafi brugðið við þessa frétt þess efnis að egypska lögreglan hafi drepið um 20 súdanska flóttamenn í áhlaupi sínu á búðir þeirra í morgun.Það sem snertir mig persónulega er að umræddar búðir voru 100 metra frá húsinu mínu, á stóru torgi fyrir framan Mústafa Mahmúd moskuna. Þar gekk ég fram hjá í hvert skipti sem ég fór í skólann eða var að fara niður í bæ. Moskan stendur við stóra umferðargötu og þar er stærðarinnar torg. Þar höfðust venjulega við nokkrar flóttafjölskyldur en ekki stór hópur. Ástæðan var sú að Flóttamannhjálp SÞ hafði skrifstofur í götunni minni (húsinu við hliðina öllu heldur) og því var lögregluvörður við götuna báðum megin og fyrir vikið nær ómögulegt fyrir þá að komast þangað nema í fylgd með lögfræðingi (ein stelpa sem ég kannaðist við var einmitt að vinna sjálfboðaliðastarf sem lögfræðingur fyrir Súdanina, eftir að hafa hætt störfum hjá Alþjóða vinnumálastofnuninni).
Agust skrifaði 30.12.05 23:02
Flokkun: Mið-Austurlönd
Sæll vinur og gleðilegt ár.
Gaman að lesa að þú heldur áfram að þroska tónlistarsmekkinn. Lenny, Johnny og REM standa alltaf fyrir sínu. Svo ertu með bestu plötur Dylans, Blood On The Tracks og Desire þínum "best of".
Annars er ég sammála þér að það er hryllingur þegar minnimáttar eru fjöldamyrtir hvar í heiminum sem það gerist.
Nú vill svo til að ég kenni meðal annars Súdönum hér í Noregi og nemendum af 22 öðrum þjóðernum. Nemenda hópurinn minn er því heldur fjölskrúðugri, bæði í húðlit og menningu, en hóparnir okkar í Öldutúni.
Hafðu það alltaf sem best og farðu að fjárfesta aðeins í tónlist. Hæfir þér ekki að vera plebbalegur. Mæli sterklega með Bangla Desh DVD-inum hans Georgs, sáluga Harrison. Harrison var alla tíð minn maður og svo kom Ringó eins og þú veist.
Bestu kveðjur
GÞÖ
Guðni Ölversson skrifaði 03.01.06 09:18