desember 30, 2005

20 Súdanir drepnir af egypsku lögreglunni - í gamla hverfinu mínu

Það er ekki laust við að mér hafi brugðið við þessa frétt þess efnis að egypska lögreglan hafi drepið um 20 súdanska flóttamenn í áhlaupi sínu á búðir þeirra í morgun.

Það sem snertir mig persónulega er að umræddar búðir voru 100 metra frá húsinu mínu, á stóru torgi fyrir framan Mústafa Mahmúd moskuna. Þar gekk ég fram hjá í hvert skipti sem ég fór í skólann eða var að fara niður í bæ. Moskan stendur við stóra umferðargötu og þar er stærðarinnar torg. Þar höfðust venjulega við nokkrar flóttafjölskyldur en ekki stór hópur. Ástæðan var sú að Flóttamannhjálp SÞ hafði skrifstofur í götunni minni (húsinu við hliðina öllu heldur) og því var lögregluvörður við götuna báðum megin og fyrir vikið nær ómögulegt fyrir þá að komast þangað nema í fylgd með lögfræðingi (ein stelpa sem ég kannaðist við var einmitt að vinna sjálfboðaliðastarf sem lögfræðingur fyrir Súdanina, eftir að hafa hætt störfum hjá Alþjóða vinnumálastofnuninni).
Agust skrifaði kl. 23:02 | Comments (1)
Flokkun: Mið-Austurlönd

desember 26, 2005

Löndin sem ég heimsótti á árinu 2005

Best að skella hérna inn einu "áramótalista". Lista yfir löndin sem ég heimsótti á árinu. Ekki jafn langur listi og í fyrra en á móti kemur bæði að þau eru meira spennandi og að ég dvaldist lengur erlendis en á Íslandi á árinu. En listinn er hér:

Bretland (4-5 dagar í janúar)
Grikkland (2-3 tímar sem ég beið eftir tengiflugi til Kaíró þar sem ég spjallaði við sessunaut minn í vélinni á McCafe stað. Hann var íraskur súnníti sem er læknir í Englandi)
Egyptaland (janúar-maí)
Líbanon, Sýrland og sýrlensku Gólan-hæðir (vika í mars-apríl)
Tyrkland (2 dagar í maí)
Bretland (4 d. í maí)
Bretland (september-desember)
Agust skrifaði kl. 14:08
Flokkun: Daglegt líf

desember 19, 2005

Held ég gangi heim

Ég hef hingað til aldrei skilið hvers vegna Jói vinur minn hefur a.m.k. tvisvar gengið úr bænum heim til sín í Hafnarfjörðinn. Hingað til.

Á fimmtudaginn fór ég með gömlu NFVÍ stjórninni á jólahlaðborð. Árlegur og góður siður.
Ég fór á bíl og var á báðum áttum hvort ég ætti að leggjast út í þau útgjöld sem rauðvín með matnum hefur í för með sér.
Lagði bílnum á stóra bílastæðið fyrir framan Bæjarins beztu og keypti engan miða, enda nýkominn til landsins og ekki með túkall í klinki.
Rauðvínsglösin urðu tvö og bjórarnir tveir og leigubíllinn skilaði mér heim fyrir svipaða krónutölu og veigarnar höfðu kostað. Sem er eitthvað sem maður er svosem vanur.
Ég gat ekki sótt bílinn fyrr en í eftirmiðdaginn á föstudeginum og biðu mín þá tvær sektir, upp á 1500 kr. hvor.

Það einkennilega, fyrir utan að hægt er að sekta mann á 3ja tíma fresti, sem ég vissi ekki, er að ef ég hefði lagt upp á gangstétt hefði ég aðeins þurft að borga 2500 kr. (aðeins ein sekt á sólarhring), svo framarlega sem bílinn hefði ekki verið dreginn í burtu auðvitað.

Tvö rauðvínsglös og tveir bjórar komu því út á um átta þúsund krónur í þetta skiptið (2500+2500+3000), sem er einmitt svipað og ég borgaði í leigu á mánuði þar sem ég bjó fyrir ári síðan.
Ætli þeir taki víxla við frá LÍN?
Agust skrifaði kl. 12:13 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

Með morgunkaffinu

Það er ekkert fyndið hvað ég sakna þess að hafa almennileg dagblöð að lesa á morgnanna.

Ég hef staðið mig að því nær alla dagana síðan ég kom heim að skoða þessa síðu til að sjá hvaða blöð ég væri að kaupa þann daginn (í dag væri það Independent og Guardian).

Svo sakna ég líka kaffivélarinnar minnar þó sú gamla standi alveg fyrir sínu. Það er bara svo yndislega einfalt að ýta á einn takka og simmsalabimm, kaffi!
Agust skrifaði kl. 9:27
Flokkun: Daglegt líf

desember 17, 2005

Bréf frá Útlendingastofnun

Mér barst boðsent bréf frá Útlendingastofnun í morgun.
Hr. Ágúst Flygenring
[Heimilisfang]

Með tilvísun í f. lið 7. greinar laga númer 136 frá 1998 tilkynnir Útlendingastofnun yður að vegabréf yðar verður afturkallað frá og með 31. desember 2005 ef þér talið ekki um innan sjö daga hve spenntur þér séuð yfir sigri Unnar Birnu í Ungfrú heimur.

Unnur Birna hefur verið „landi og þjóð til sóma“, líkt og komið hefur fram í tilkynningu forsætisráðherra. Þér hafið ekki tekið undir þessi orð sem skyldi og því hefur Útlendingastofnun verið falið að afturkalla vegabréf yður og annarra íslenskra þegna sem ekki hafa tekið þessum tíðindum með tilheyrandi þjóðarstollti.

f.h. Útlendingastofununar
[Undirskrift, nafn og starfstitill]
Ég hef því leitað pólitísks hælis í Bretlandi. Vegna hertra skilyrða um hæli þar hef ég einnig reynt að finna hæli annars staðar.
Agust skrifaði kl. 14:46
Flokkun: Ísland

desember 13, 2005

Óskalisti jólanna

Óskalistinn mín fyrir þessi jólin er eftirfarandi.

Ég vil
  • ekkert reykt eða af svíni um jólin,
  • að það verði ekki of kalt,
  • að fólk hætti að kaupa flugelda,
  • að fólk gefi a.m.k. 1% af árslaunum sínum til góðra málefna og hafi sem reglu framvegis (semsagt 10.000 kr. per milljón),
  • fá steik á jólunum (einsog vinur minn sem er kvæntur grænmetisætu og borðar þess vegna alltaf nautalund á aðfangadag),
  • gott rauðvín með steikinni,
  • klára fyrsta uppkastið að báðum ritgerðunum sem ég þarf að skrifa,
  • hitta vini mína og fjölskyldu,
  • að allar jólagjafirnar sem áttu að koma í póstinum í dag komi í fyrramálið áður en ég fer með lestinni af stað [kom! :)],
  • góða ferð heim,
  • koníak í vélinni,
  • engan snjó fyrr en ég er farinn aftur,
  • og frið á jörð.
Agust skrifaði kl. 0:27 | Comments (2)
Flokkun: Daglegt líf

desember 12, 2005

Örsaga

Einu sinni var skrifstofumaður sem vann í opnu rými. Hann hafði tekið sér langt sumarfrí og haft það náðugt út á landi í kyrrðinni í rúman mánuð.

Síðan var komið að því að hann mætti til vinnu snemma morguns og settist við borðið sitt og reyndi að slá inn notandaheiti og lykilorð. En ekkert gekk.

Hann tók því upp símann og hringdi. Hann kynnti sig og ræddi svo um hve náðugt hann hafði það fyrir austan. En heyrðist svo segja:
Heyrðu... en nú er illt í efni get ég sagt þér. Ég er hræddur um að ég hafi gleymt lyklaborðinu mínu í sumarfríinu.
Agust skrifaði kl. 1:39 | Comments (2)
Flokkun: Óflokkanlegt

desember 09, 2005

TV Heaven

Eftir yndislega vel heppnað matarboð kveiki ég á sjónvarpinu og horfi á Stephen Fry með QI og Jonathan Ross einsog vera ber á föstudagskvöldi. Vaska upp í gegnum hálfan Jonathan Ross og býst ekki við neinu sérstöku til viðbótar. Nema hvað, dagskrá kvöldsins á BBC2 í kvöld:
The Concert for Bangladesh (linkurinn er á tónleikaupptökuna, ekki heimildamyndina)
11:35pm - 12:20am
Subtitled, Widescreen
An unfussy documentary of one of the major media events of 1971: the twin benefit concerts held at Madison Square Garden for the starving refugee children of Bangladesh organized by George Harrison and noted sitar player Ravi Shankar. Press conferences and rehearsals are intercut with performances by Harrison (singing Beatles classics and solo hits), Shankar, Ringo Starr, Billy Preston, Leon Russell and Eric Clapton. The highlight is Bob Dylan, then making his first public appearance in two years, singing Blowin' in the Wind and Just Like a Woman. On a humanitarian note, much was learnt the hard way from this concert as the money raised was held up by red tape for years afterwards.

Directed by: Saul Swimmer. Filmed in: 1972. George Harrison, Bob Dylan, Ringo Starr, Ravi Shankar, Eric Clapton, Leon Russell.
Og svo
Talking Bob Dylan Blues: A Tribute Concert
12:20am - 1:20am
Subtitled, Widescreen
BBC Four on BBC Two
Tribute concert from the Barbican celebrating Bob Dylan's music. Featured artists include Billy Bragg, Martin Carthy, Odetta, Willy Mason, Liam Clancy, Robyn Hitchcock, Roy Harper, K T Tunstall and Barb Jungr. All performers offer their own individual view on Dylan's influence and significance to them personally.
Ágætt að það kláraðist ekki allt hvítvínið :)
Agust skrifaði kl. 23:54 | Comments (5)
Flokkun: Menning

desember 05, 2005

Allnighter

Jæja, klukkutími í skil. Lesa einu sinni enn yfir, lagfæra, prenta, hefta, merkja, skila. Og pissa helst einhvers staðar þarna á milli!
My night is colored headache grey
Don't wake me with so much.
Daysleeper.

I cried the other night
I can't even say why
Fluorescent flat caffeine lights
Its furious balancing

I'm the screen, the blinding light
I'm the screen, I work at night

I see today with a newsprint fray
My night is colored headache grey
Don't wake me with so much.
The ocean machine is set to nine
I'll squeeze into heaven and valentine
My bed is pulling me,
Gravity
Þetta er farið að minna á Söngvasíðu Þóris!
Agust skrifaði kl. 8:16 | Comments (1)
Flokkun: Daglegt líf

Eru ekki allir í stuði?

Ég er það!

Klukkan er fimm og ég er kominn tvo tíma yfir áætlun. Það er svona þegar orðafjöldinn er hátt í 3000 en má vera 2500 max.

Orðinn dulítið dasaður á að sitja við síðan 10.30 í morgun, það fer að vera 19 tíma yfirseta. Var frá 11-02 í gær og 15-02 á föstudag. Samtals eru góð vinnuvika með rúmri yfirvinnu. Og það á 2 1/2 sólarhring!

And now the end is near, and so I face the final curtain. My friend I'll say it clear, I'll state my case, of which I'm certain.
Agust skrifaði kl. 5:06
Flokkun: Daglegt líf

desember 04, 2005

All That She Wants

Einu sinni var talað um Ace of Base sem "næstu ABBA".

Ég bíð enn eftir söngleiknum.
Agust skrifaði kl. 15:56
Flokkun: Menning

Monday Morning

Ef einhver gæti sent mér lagið Monday Morning með Suede þá er það u.þ.b. það sem er að fara í gegnum huga minn núna.

See the birds in the sea
People on the streets, do whatever we please

But every Monday morning comes,
Every Monday morning, yeah

Reyndar hefur mánudagsmorgun þveröfuga merkingu fyrir mig núna. Altso, ég hlakka mikið til að þessu sé lokið!
Agust skrifaði kl. 12:55
Flokkun: Daglegt líf

desember 02, 2005

Timed Essay

Jæja, þá er Timed Essay helgin skollin á. Fékk lista með 7 spurningum/efnum sem ég fæ að velja eitt af, skrifa um 2000-2500 orða ritgerð og skila á mánudagsmorgun klukkan 10.
How and why have the World Bank's policies towards development changed since the beginning of the 1970s? er efnið sem ég mun skrifa um.
Ekki nákvæmlega það sem ég bjóst við. Efnið um SAPs var samanburður við PRSPs sem ég eiginlega nenni ekki að fara út því, því það er frekar tæknilegt, þannig ef þessum tveimur sem mér leyst best á, tók ég hið fyrrnefnda.
Agust skrifaði kl. 17:41
Flokkun: Daglegt líf