janúar 12, 2006
Foucault
Síðast í gær var sagt við mig "þetta er svo mikið Foucault", svona einsog það útskýrði eitthvað. Ég var að reyna að útskýra fyrir vinkonu minni af hverju mér finnast helstu rökin gegn dauðarefsingum vera að við getum ekki treyst yfirvöldum alltaf, alls staðar og það eitt ætti að vera nóg fyrir okkur að vilja ekki hafa þann "glugga" opinn. Ég veit ekki hvernig það var "fúhkó" að segja það. Ég held að það hafi meira með það að gera að mastersnema í félagsvísindum segja eitthvað "fúhkó" álíka oft og undergradar segja eitthvað "póstmódernískt". Þetta hljómar voðalega gáfulega. Svona einsog þegar bókmenntafræðingar Derrida-st yfir hlutunum.Það var hinsvegar ekkert voðalega gáfulegt af mér í gær í tíma snemma morguns að segja ákveðna kenningu sem við vorum að ræða í tíma í lýðræðisþróun hjá mínum virðulega prófessor að hún væri þegar öllu væri á botninn hvolft "bollocks"!
Mér til varnar er það orð í enskri tungu orðið nægilega "mainstream" að lítil stelpa segir það ítrekar í VW-auglýsingu. En það er annað mál.
Agust skrifaði 12.01.06 15:53
Flokkun: Heimspeki