janúar 20, 2006
Das (Global) Kapital
Timed Essay 2 skollin á. Fékk ritgerðarefnin fyrir um klukkutíma síðan. Var búinn að undirbúa mig fyrir að fjalla um kenningar um hnattvæðingu, frá marxískum imperíalisma til neoliberalískrar dýnamíkur. Það kom ekki og er ég ekki einn um að vera fúll yfir því.Efnið sem ég ætla að tækla er 'The only thing worse than being exploited by global capital is not being exploited by global capital'. Discuss.
Ætla að færa rök fyrir því hvernig "exploited global capital" þýði í raun hnattvæðing í þessu samhengi (með marxísku orðavali) og fara svo í gegnum hvernig neoliberalisminn lítur á hnattvæðinguna sem tækifæri en ekki ógnun. Taka fyrir gagnrýnina á það og færa svo rök fyrir því hvernig kapítalisminn sé "the only game in town", fólk þurfi að sætta sig við það og það sé ekki hægt að horfa frá hjá þeirri staðreynd og koma upp með einhver útópísk svör. Ef tækla eigi vandamálin sem fylgja hnattvæddum kapital þurfi að gera það á kapítalískum forsendum. "If you can't beat'em, join'em!" Eina leiðin til að vinna gegn "óæskilegum" fylgifiskum hnattvæðingarinnar sé frekar að setja staðla um aðbúnað á vinnustöðum, stuðla að auknu eftirliti með réttindum vinnufólks o.s.frv. en ekki setja hömlur á fjárfestingar eða óraunhæfar kröfur um kaup og kjör. Þegar allt kemur til alls sé það eina sem sé verra en hnattvæðing kapítali, skortur á hnattvæddu kapítali.
Agust skrifaði 20.01.06 16:44
Flokkun: Daglegt líf