janúar 23, 2006
Into the Wee Hours
Klukkan orðin þrjú og stemmning í ritgerðarsmíðunum. Hefur gengið nokkuð betur en síðast og vonandi að það skili sér í einkunninni.Ritgerðarskrifum er semsagt lokið og nú þarf bara að fínesera og skrifa útdráttinn, sem getur tekið á stundum.
Einbeitti mér sérstaklega að því, í þessari ritgerð, að hafa röksemdinni alveg í gegnum alla ritgerðina. Kannski að ég hafi frekar farið yfir strikið í að vera skýrorður með fyrirsagnirnar á þessum milliköflum:
"Global Capital: Modern Day Imperialism or Economic Globalization?"
"Why it is worse not being exploited by global capital"
og rúsína í pylsuendanum:"Cheers for Sweatshops"
Þessi síðasta er raunar tilvísun í titil á einni grein en góð fyrir því :)
Hér til hliðar gefur að líta samtíðarmynd af sjálfum mér. Græni liturinn umhverfis mig ber vott um mikla heilastarfsemi og frjóa hugsun. Eða svefnleysi, þreytu og sára þörf á hárþvotti.
Agust skrifaði 23.01.06 03:12
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Your hair is bigger than your head!!
Ólöf skrifaði 24.01.06 11:04Berjast.
Ásgeir Reykfjörð skrifaði 24.01.06 11:55Þú ert duglegur strákur! :)
Unnur skrifaði 25.01.06 13:50Fowler kominn aftur! ; )
Vinnualkinn skrifaði 28.01.06 18:31Ef ég nú bara vissi hvað "Vinnualkinn" á við... :-/
Ágúst skrifaði 28.01.06 21:13Nú þegar ég skoða þessa mynd aftur átta ég mig á því hvað mér fannst svo annarlegt við hana. Þú minnir á henni mjög á Má!
Unnur skrifaði 02.02.06 16:02Haha! Það er svolítið til í því, svona þegar þú segir það :-)
Það er einhvern veginn líka mjög "máskt" að taka svona mynd af sjálfum sér og setja á netið :-P
Ágúst skrifaði 02.02.06 23:13