janúar 29, 2006
Fjórflokkakerfið
Samkvæmt formúlu sem J. Benson Durham setur fram í sinni "Economic Growth and Political Regimes" (Journal of Economic Growth 4 March 1999) var fjöldi virkra flokka á Íslandi reiknaður m.v. fimm ára meðaltöl fyrir 1960-89 3,8.Fjórflokkakerfið sannar sig semsagt ágætlega í þessari formúlu.
Ísland er þar með í sjötta sæti en efstu tíu löndin eru:
Belgia 4,885
Danmörk 4,734
Holland 4,54
Papúa Nýja Guinea 4,52
Ísrael 4,13
Ísland 3,8
Ítalía 3,53
Noregur 3,35
Svíþjóð 3,25
Finnland 3,1
Þess má geta að Frakkland með sína 207 sósíalísku, kommúnísku, marxísku, trotskýísku, maóísku og gaulleísku flokka telst með 2,243 flokka. Bretland telst með 2,1 flokk, sem er nær sama og Indland telst með. Bandaríkin teljast hinsvegar með 1,462 flokka.
Athyglisvert er að Japan telst hafa 2,7 flokka, sem er 12. hæsta útkoman. Japanir hafa hinsvegar aðeins einu sinni kosið Lýðræðislega demókrata út og það var nokkrum árum eftir það tímabil sem könnunin nær til. Það er önnur saga en merkilegt þótti mér að fjórflokkakerfið sannaðist svona vel þegar ég rakst á þetta.
Agust skrifaði 29.01.06 01:30
Flokkun: Stjórnmál , Ísland