janúar 30, 2006

Þreytumerki?

Labbaði áðan fram hjá bókavagni hérna á bókasafninu og sá út undan mér titil á kili nokkuð þykkrar bókar sem lá efst í vagninum.
WOMEN ARE PUNISHMENT
Staðnæmdist auðvitað við vagninn, aðeins til að sjá hinn rétti titill bókarinnar var auðvitað Women AND Punishment og fjallar víst m.a. um konur í fangelsum.
Women Are Punishment hefði ábyggilega verið mun áhugaverðari lesning!
Agust skrifaði kl. 18:15
Flokkun: Daglegt líf

Orð dagsins

I want to thank the President and the CEO of Constellation Energy, Mayo Shattuck. That's a pretty cool first name, isn't it, Mayo. Pass the Mayo. His wife, Molly, appreciated that.
- - - George W. Bush in Lusby, Maryland, Jun. 22, 2005 (www.dubyaspeak.com)
Agust skrifaði kl. 1:20
Flokkun: Óflokkanlegt

janúar 29, 2006

Fjórflokkakerfið

Samkvæmt formúlu sem J. Benson Durham setur fram í sinni "Economic Growth and Political Regimes" (Journal of Economic Growth 4 March 1999) var fjöldi virkra flokka á Íslandi reiknaður m.v. fimm ára meðaltöl fyrir 1960-89 3,8.

Fjórflokkakerfið sannar sig semsagt ágætlega í þessari formúlu.

Ísland er þar með í sjötta sæti en efstu tíu löndin eru:
Belgia 4,885
Danmörk 4,734
Holland 4,54
Papúa Nýja Guinea 4,52
Ísrael 4,13
Ísland 3,8
Ítalía 3,53
Noregur 3,35
Svíþjóð 3,25
Finnland 3,1

Þess má geta að Frakkland með sína 207 sósíalísku, kommúnísku, marxísku, trotskýísku, maóísku og gaulleísku flokka telst með 2,243 flokka. Bretland telst með 2,1 flokk, sem er nær sama og Indland telst með. Bandaríkin teljast hinsvegar með 1,462 flokka.

Athyglisvert er að Japan telst hafa 2,7 flokka, sem er 12. hæsta útkoman. Japanir hafa hinsvegar aðeins einu sinni kosið Lýðræðislega demókrata út og það var nokkrum árum eftir það tímabil sem könnunin nær til. Það er önnur saga en merkilegt þótti mér að fjórflokkakerfið sannaðist svona vel þegar ég rakst á þetta.
Agust skrifaði kl. 1:30
Flokkun: Stjórnmál , Ísland

janúar 23, 2006

Into the Wee Hours

Klukkan orðin þrjú og stemmning í ritgerðarsmíðunum. Hefur gengið nokkuð betur en síðast og vonandi að það skili sér í einkunninni.

Ritgerðarskrifum er semsagt lokið og nú þarf bara að fínesera og skrifa útdráttinn, sem getur tekið á stundum.

Einbeitti mér sérstaklega að því, í þessari ritgerð, að hafa röksemdinni alveg í gegnum alla ritgerðina. Kannski að ég hafi frekar farið yfir strikið í að vera skýrorður með fyrirsagnirnar á þessum milliköflum:
"Global Capital: Modern Day Imperialism or Economic Globalization?"
"Why it is worse not being exploited by global capital"
og rúsína í pylsuendanum:
"Cheers for Sweatshops"

Þessi síðasta er raunar tilvísun í titil á einni grein en góð fyrir því :)

Hér til hliðar gefur að líta samtíðarmynd af sjálfum mér. Græni liturinn umhverfis mig ber vott um mikla heilastarfsemi og frjóa hugsun. Eða svefnleysi, þreytu og sára þörf á hárþvotti.
Agust skrifaði kl. 3:12 | Comments (7)
Flokkun: Daglegt líf

janúar 22, 2006

Mynd dagsins

er af ástinni í lífi mínu þessa dagana, kaffivélinni minni.
Agust skrifaði kl. 12:20
Flokkun: Daglegt líf

janúar 21, 2006

Bæjarstarfsmenn

Vísir.is hlýtur að eiga skemmtilegustu myndskýringu dagsins með þessari skemmtilegu mynd af bæjarstarfsmönnum í vinnunni - eða setuverkfalli - nema hvorttveggja sé. Hún fylgir frétt af kjaramálum þeirra.
Agust skrifaði kl. 1:37
Flokkun: Fréttir

janúar 20, 2006

Mynd dagsins

Orð dagsins: vicissitudinous (vi·cis·si·tu·di·nar·y)
Agust skrifaði kl. 22:33
Flokkun: Daglegt líf

Das (Global) Kapital

Timed Essay 2 skollin á. Fékk ritgerðarefnin fyrir um klukkutíma síðan. Var búinn að undirbúa mig fyrir að fjalla um kenningar um hnattvæðingu, frá marxískum imperíalisma til neoliberalískrar dýnamíkur. Það kom ekki og er ég ekki einn um að vera fúll yfir því.

Efnið sem ég ætla að tækla er 'The only thing worse than being exploited by global capital is not being exploited by global capital'. Discuss.
Ætla að færa rök fyrir því hvernig "exploited global capital" þýði í raun hnattvæðing í þessu samhengi (með marxísku orðavali) og fara svo í gegnum hvernig neoliberalisminn lítur á hnattvæðinguna sem tækifæri en ekki ógnun. Taka fyrir gagnrýnina á það og færa svo rök fyrir því hvernig kapítalisminn sé "the only game in town", fólk þurfi að sætta sig við það og það sé ekki hægt að horfa frá hjá þeirri staðreynd og koma upp með einhver útópísk svör. Ef tækla eigi vandamálin sem fylgja hnattvæddum kapital þurfi að gera það á kapítalískum forsendum. "If you can't beat'em, join'em!" Eina leiðin til að vinna gegn "óæskilegum" fylgifiskum hnattvæðingarinnar sé frekar að setja staðla um aðbúnað á vinnustöðum, stuðla að auknu eftirliti með réttindum vinnufólks o.s.frv. en ekki setja hömlur á fjárfestingar eða óraunhæfar kröfur um kaup og kjör. Þegar allt kemur til alls sé það eina sem sé verra en hnattvæðing kapítali, skortur á hnattvæddu kapítali.
Agust skrifaði kl. 16:44
Flokkun: Daglegt líf

janúar 15, 2006

Þáttur Conan O'Brien í finnsku forsetakosningunum

Þegar maður eyðir mestöllum deginum og kvöldinu í að lesa um málefni Tævan, veitir ekki af smá upplyftingu.

Og upplyftingu getur líka verið að finna í stjórnmálafréttum.

Conan's Endorsement No Joke to Some Finns
The redheaded late-night talk show host Conan O'Brien has been promoting President Tarja Halonen's re-election bid as part of a long-running joke about their supposed physical similarities.

''Why do I support Tarja Halonen? Because she's got the total package: a dynamic personality, a quick mind, and most importantly -- my good looks,'' the comedian, whose show is broadcast on cable in Finland, said in a statement to The Associated Press.
Hér má bæði sjá myndir af þeim báðum, svona til samanburðar, og sækja myndskeið þar sem Conan lýsir kostum Halonen.
Agust skrifaði kl. 0:06 | Comments (1)
Flokkun: Stjórnmál

janúar 14, 2006

Þórðargleðin, Talk-Show Charlie og Gorgeous George

Nú í vikunni er allt búið að vera vitlaust yfir DV og margir fara fram uppfullir af Þórðargleði yfir að sjá þetta "svívirðilega" blað í kröggum. Á sama tíma kaupir fjórði hver Íslendingur DV á hverjum degi [sjá athugasemd í kommentakerfi] en auðvitað er það málinu óviðkomandi. Það er hin viðurkennda sjálfumglaða afstaða að vera á móti DV og enginn heiðvirtur borgari kaupir blaðið.

_ _ _

Þórðargleðin hefur líka verið áberandi hér í Bretlandi í vikunni. Drykkjukúltúr landsins fer að matri flestra hríðversnandi en almennt viðhorf til alkóhólisma er að hlæja með alkanum á meðan hann er fullur en hlæja honum þegar hann tekur sig á. Hí-á þann sem þarf að viðurkenna veikleikann.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 14:20 | Comments (3)
Flokkun: Mið-Austurlönd , Stjórnmál , UK

janúar 12, 2006

Foucault

Síðast í gær var sagt við mig "þetta er svo mikið Foucault", svona einsog það útskýrði eitthvað. Ég var að reyna að útskýra fyrir vinkonu minni af hverju mér finnast helstu rökin gegn dauðarefsingum vera að við getum ekki treyst yfirvöldum alltaf, alls staðar og það eitt ætti að vera nóg fyrir okkur að vilja ekki hafa þann "glugga" opinn. Ég veit ekki hvernig það var "fúhkó" að segja það. Ég held að það hafi meira með það að gera að mastersnema í félagsvísindum segja eitthvað "fúhkó" álíka oft og undergradar segja eitthvað "póstmódernískt". Þetta hljómar voðalega gáfulega. Svona einsog þegar bókmenntafræðingar Derrida-st yfir hlutunum.

Það var hinsvegar ekkert voðalega gáfulegt af mér í gær í tíma snemma morguns að segja ákveðna kenningu sem við vorum að ræða í tíma í lýðræðisþróun hjá mínum virðulega prófessor að hún væri þegar öllu væri á botninn hvolft "bollocks"!

Mér til varnar er það orð í enskri tungu orðið nægilega "mainstream" að lítil stelpa segir það ítrekar í VW-auglýsingu. En það er annað mál.
Agust skrifaði kl. 15:53
Flokkun: Heimspeki

janúar 11, 2006

Nóg komið

Jæja, yfir 80 gestir búnir að tjá sig um síðustu færslu. Eða öllu heldur, búnir að tjá sig um DV og "sjálfsmorðsmálið", einsog það verður sjálfsagt þekkt næstu ár.

Hafði aldrei hug á að setja hérna upp gjallarhorn fyrir hvern þann sem vill úthúða DV, ritstjóra þess og blaðamenn eða manninn á forsíðunni. Tenglasíðan B2.is hjálpaði óneitanlega með að beina hingað um 5000 gestum.

Vandamálið er að ég þarf að lesa þessi komment öll yfir og tók út þau verstu. Þessu hvorki nenni ég né hef tíma fyrir og því lokaði ég fyrir kommentin. Fyrir utan að fæst þeirra voru málefnaleg. Leyfi þeim langflestum samt að standa, svona sem heimild um viðbrögð internetsins. Þeir sem vilja gera undirskriftalista eða skipuleggja eggjakast á eignir eða starfsmenn blaðsins þurfa að leita annað.

Lifið heil.
Agust skrifaði kl. 20:25
Flokkun: Internetið

DV og Vísir.is

Vísir.is birtir frétt um það kl. 21.52 að maður sem sakaður var á forsíðu DV um kynferðisafbrot gegn drengjum hefði svipt sig lífi í morgun. Sjá: Stjórnin kölluð saman
Þar er birt mynd af Örnu Schram, form. Blaðamannafélagsins. Allt í lagi með það svosem. Tveimur tímum áður var birtur pistill eftir Egil Helgason, Augun beinast að eigendum DV, þar sem segir m.a. að nú sé tími til að "breyta stefnunni eða leggja niður blaðið". Með grein Egils er þessi mynd (birt með heimild í visir.is):
Nema hvað, að á sama tíma er á forsíðu Vísis.is enn hægt að smella á þessa litlu mynd og fá mynd sem er nægilega stór til að vera auglesanleg af forsíðu blaðsins síðan í dag. (Og aftur birti ég mynd með heimild í visir.is)
Undarlegt. Blörrað á innsíðu en með stórum stöfum á forsíðu.

Annars þekki ég ekkert til málsins. Var verið að benda mér á þetta núna rétt áðan. Rak bara augun í þetta misræmi, með skýra mynd á forsíðu og svo sama myndin blörruð.
Agust skrifaði kl. 2:12 | Comments (82)
Flokkun: Ísland

janúar 10, 2006

Shawarma

Ég veit um fátt sem mér finnst eins gott og shawarma. Þegar ég kíkti á Moggavefinn áðan var þar komið video clip (ekki séð það áður á mbl.is) frá Reuters sem sagði frá því að Sharon væri mikið fyrir "sharma" (sem er annaðhvort hreinlega framburðarmistök fréttamannsins eða hebreska orðið yfir réttinn) og myndir af skyndibitastaðnum sem hann stundaði. Fréttin var ekki um matarvenjur þessa frægasta sjúklings heims þessa stundina heldur eru læknar hans víst að reyna að vekja hann upp úr dáinu með lyktinni af shawarma.
Sharon's two sons played Mozart symphonies at his bedside in an effort to elicit a response, and when they spoke to him an electronic monitor showed changes in his brain wave pattern, the Maariv daily newspaper reported.

Among the ways doctors hope to stimulate his senses is to place his favorite foods, including a plate of shawarma, a sliced meat dish, in his hospital room, Israel Radio said.
Ef shawarma er ekki nóg til að vekja hann upp sé ég ekki að nokkuð geti bjargað honum.

Ég hef ekki fengið almennilegt shawarma (fékk mér eitt niðri í Hafnarstræti um jólin) síðan í maí. Það er ekki gott.

janúar 05, 2006

A Very Short Story

People always though he was very self-assured. Some even said he was an arrogant prick!

Maybe the flashy clothes and his big smile didn’t help. But people took his confidence the wrong way. Yeah, he sometimes had to have the last word and could be Mr. Know It All, but only if he really felt he needed to push his opinions forward.

He wasn’t arrogant at all. I knew him well. It was just his thick cocky accent that put people off.
Agust skrifaði kl. 22:21
Flokkun: Óflokkanlegt

janúar 04, 2006

Móna

Þýðingin mæltist vel fyrir og hrósaði Mona Omar Attia, sendiherra Egyptalands í Danmörku, þýðingunni. „Þetta er jákvætt skref og ég vona að ríkisstjórn (í Egyptalandi) líti á þetta sem góða þróun,“ sagði hann í samtali við danska dagblaðið Politiken. (mbl.is)
Sjálfsagt heiðarleg mistök hjá Mogganum en Móna er engu að síður kvenmaður. Það gera sér kannski ekki allir grein fyrir því að hjá arabaríkinu Egyptalandi eru fjölmargar konur sem starfa í utanríkisráðuneytinu sem öðrum ráðuneytum. Jafnvel á æðstu levelum.
Agust skrifaði kl. 13:22
Flokkun: Mið-Austurlönd

janúar 02, 2006

Mest spiluðu plöturnar

Samkvæmt Media Playernum í tölvunni minni eru mest spiluðu plötur ársins 2005 hjá mér Moon Safari með Air (spiluð ca. 25 sinnum) og In Time: The Best of R.E.M. 1988-2003 (spiluð ca. 22 sinnum). Örfá lög hafa fengið meiri spilun en önnur og oft sem ég hef byrjað að hlusta á plötuna en ekki klárað það og því fyrstu lögin oftar spiluð. En þetta eru áætluð meðaltöl.

Ég hlusta mjög mikið á heilar plötur frá upphafi til enda á tölvunni. Ég hinsvegar hlustaði sama og ekkert á tónlist í tölvunni í júní-ágúst, þannig þetta er aðallega tónlist spiluð í Kaíró og Coventry.

Á eftir þessum tveimur plötum er kvikmyndatónlistin úr About a Boy með Badly Drawn Boy í fjórða sæti með u.þ.b. 13 spilanir og lögin á Frank Sinatra's Greatest Hits Vol. 2 voru spiluð 9-15 sinnum á árinu.

Af Bob Dylan plötunum (sem röðuðu sér í flest sætin þar á eftir) voru Time Out of Mind og Love and Theft vinsælastar hjá mér, hvor um sig spiluð 11-12 sinnum en síðan komu Blood on the Tracks, sem var spiluð 10-11 sinnum, Desire: 8-11 sinnum, og Highway 61 Revisited og Slow Train Coming voru að meðaltali spilaðar 8-9 sinnum.
Talkie Walkie með Air spilaði ég 9-10 sinnum, The Best of Van Morrison 7-10 sinnum, Velvet Underground & Nico ca. 8 sinnum, The Songs of Leonard Cohen spilaði ég 8 sinnum á árinu (spila hana alltaf sem eina heild frá upphafi til enda) og kom það svosem ekkert mikið á óvart. Ég gerði mér hinsvegar ekki grein fyrir að ég spilað Bítlatónlistina úr myndinni I Am Sam (þó ég þoli ekki Nick Cave útgáfuna af Let It Be) ca. 7 sinnum. Nær allar aðrar plötur fengu minni eða mun ójafnari spilun. Hitt lagið um Jón með Brúðarbandinu var t.d. spilað 11 sinnum á meðan tvö lög af sömu plötu voru bara spiluð fjórum sinnum. Eini diskurinn sem ég veit að vantar þarna er American IV með Johnny Cash, sem klikkaði eitthvað hjá mér og ég þurfti að endurafrita á tölvuna í haust þannig að talningin datt út.

Og hver er svo niðurstaðan? Hver er tilgangurinn með þessari samantekt? Engin(n). Ég fíla Air, R.E.M., Bob Dylan og tölfræði? Og ég spila yfirleitt heilar plötur í einu, ekki lög. Já og ég kaupi mér eiginlega aldrei nýja tónlist og er voðalega plebbalegur og gamaldags í tónlistaráhuga!

Annars ætla ég að gera aftur eins samantekt að ári og bera saman. Gæti verið áhugavert.
Agust skrifaði kl. 18:51
Flokkun: Menning