febrúar 04, 2006

Múhammeðs-myndirnar og Íslandstengingin

Athyglisvert að sú grein sem margar vef-fréttaveitur vísa á og birtir Múhammeðs-myndirnar alræmdu, er skrifuð af Hirti J. Guðmundssyni. (greinin hefur nú, skv. teljara síðunnar, verið sótt 300 þús sinnum)

Greinin birtist í vefriti - að því er virðist - hægrisinnaðra ESB andstæðinga. Hjörtur fór eitt sinn mikinn á netinu undir heitinu Ísbjörninn. Hann var eitt sinn í forsvari fyrir hóp sem kallaði sig Flokk framfarasinna, þar sem Óli Gunnarr Håkansson var varaformaður. Aðrir félagsmenn höfðu sig minna í frammi (og gerðu sumir grín að því á þeim tíma að um væri að ræða dúett en ekki flokk).

Hjörtur náði á sínum tíma að komast með boðskap inn í a.m.k. einn eða tvo útvarpsþætti, þar sem hann talaði blíðlega um það hvers vegna Ísland væri í sjálfu sér bara fyrir Íslendinga og þá útlendinga sem gerðust vel íslenskir í lund og hátterni. Eitthvað rámar mig líka í að hann hafi t.d. mótmælt því að Listasafn Íslands spilaði íslömsk bænaköll í kringum arabíska listsýningu. Kallaði það "tákn kúgunnar" eða eitthvað álíka ef ég man rétt. Í kringum þessa síðu hef ég vitnað í ýmislegt sem Hjörtur Ísbjörn sagði og skrifaði (en bæði síður hans og Framfarasinna hafa verið teknar niður) en ekki verður út í það farið núna. Síðast man ég eftir að hafa rekið undrandi augun í nafn hans í fréttatilkynningu um stofnfélaga Heimssýnar. Þótti bara athyglisvert að sjá prófílinn á þessu hollenska vefriti, þar sem hann er fastur penni.
Hjörtur is a member of the Icelandic Independence Party (Sjálfstæðisflokkurinn - conservative/libertarian) and a member of the party's Committee on Foreign Affairs. He also served as chairman of the Foreign Committee of the National Youth Organisation of the Independence Party (Samband ungra sjálfstæðismanna) at its national congress in 2005.
Orð Guðmundar góða koma upp í hugann.
Agust skrifaði 04.02.06 21:23

Flokkun: Mið-Austurlönd , Stjórnmál , Ísland
Comments

Það er nú nokkuð gaman að rúlla í gegnum þetta allt hér...

http://web.archive.org/web/20030603184248/www.framfarir.net/alyktanir.htm

bió skrifaði 05.02.06 20:17

Já, skemmtilegar ályktanir. Þetta kallast nú held ég bara "mainstream" skoðanir í dag.

Teitur skrifaði 05.02.06 22:58

Hjörtur komst meira að segja í stólinn í Silfur-Egils þar sem hann kynnti flokkinn og hvað hann stóð fyrir, skömmu eftir stofnun hans. Agli þótti hann óvenju "málefnalegur", miðað við róttæka stefnu..

Einar skrifaði 07.02.06 20:46

Ég þakka BIÓ kærlega fyrir linkinn. Hann er mjög áhugaverður.

Einar, var það fyrir, eftir eða á meðan hann kallaði sig Hjört J. Hjartar?

Ókosturinn við internetið er að menn geta auðveldlega afmáð allar slóðir sínar, góðar og slæmar. Þess vegna var gott að fá linkinn frá BIÓ. Menn geta þá rifjað upp hvaða boðskap Framfarasinnar stóðu fyrir. En líkt og fleiri áhugamannafélög á hægrijaðrinum virðast forystusveinarnir iðulega gefast upp fljótt og eru komnir inn í landsfundarnefndir áður en þeir vita af, svo framarlega auðvitað að þeir sýni prúðmannlega, "málefnalega" framkomu.

Það reyndar er alveg rétt, á svipuðum tíma dúkkaði FÍÞ upp og voru Framfarasinnar auðvitað prestslegir í útliti við hliðina á arísku kynbótarmönnunum, sem þó náðu að halda a.m.k. einn fund á - að mig minnir - Hótel Loftleiðum. Atvikaðist einhvern veginn þannig, að sögn gárunganna, að nógu margir þeirra voru í landi til að halda fund.

Á meðan Þjóðernissinnarnir fóru aftur á sjóinn fóru Framfarasinnarnir aftur í Flokkinn.

"Where even Richard Nixon has got soul."

Ágúst skrifaði 07.02.06 21:36

Þurfti þennan Framfaraflokk nokkuð lengur? Eru ekki ríkisstjórnin búin að taka upp flest það sem þeir framfarasinnar töluðu fyrir?

Teitur skrifaði 09.02.06 03:53