febrúar 17, 2006
Afturvirka getnaðarvarnarpillan
Tvær fréttir um afturvirku getnaðarvarnarpilluna:Abortions at home are safe - pilot study
Australia ends abortion drug 'ban'
febrúar 15, 2006
Conelandia
Conan O'Brien er í pílagrímsferð til Finnlands. Þar mun hann hitta forseta landsins, "lúkkalækinn" sinn, Törju Halonen. Sjá t.d. A Trip to Conelandia, Also Known as FinlandHann gerði grínauglýsingar til stuðnings Halonen, líkt og ég hef áður minnst á.
febrúar 14, 2006
Útlendingar í eigin föðurlandi
Grein í IHT sem vert er að lesa:Foreigners in their own land
Fjallar um Kúrda í Norðaustur-Sýrlandi sem gerðir voru landlausir af eigin ríkisstjórninni í Damaskus fyrir rúmum fjórum áratugum síðan.
febrúar 13, 2006
Fréttin ótrúlega
Þegar ég sá þetta fyrst í kvöld trúði ég ekki mínum eigin augum.Cheney Accidentally Shoots a Fellow Hunter
Varaforseti Bandaríkjana SKAUT semsagt 78 ára gamlan mann, sem er með skotsár á vanga, hálsi og brjósti.
Raunar var fréttin sem ég las fyrst í kvöld frá AP, þar sem vitnað var í almannatengslafulltrúa Cheney. Það sé hún lét út úr sér var eiginlega bara grátbroslegt m.v. aðstæður. Að sjúkrabíll og læknir sem fylgja varaforsetanum hvert mál (ef hann fengi enn eitt hjartaáfallið) hefðu hlúð að fórnarlambinu.
Cheney accidentally shoots fellow hunter
Varaforsetinn og félagar hans voru að skjóta LYNGHÆNUR þegar hann skaut aldna lögfræðinginn af 30 metra færi.
"It broke the skin," she said of the shotgun pellets. "It knocked him silly. But he was fine. He was talking. His eyes were open. It didn't get in his eyes or anything like that.Sagði eigandi búgarðsins þar sem þeir höfðu verið á veiðum um atburðinn. (sjá)
"Fortunately, the vice president has got a lot of medical people around him and so they were right there and probably more cautious than we would have been," she said. "The vice president has got an ambulance on call, so the ambulance came."
Einnig segir í fréttaskeytum að Cheney sé vanur veiðimaður, sem fari á fasanaveiðar í Suður-Dakóta, veiði endur í Arkansas en þetta mun vera í fyrsta skipti sem hann skjóti lögfræðing.
Glæpasaga helgarinnar
Ef ské kynni að fréttinni verði breytt, þá ætla ég að endurbirta þessa frétt af Vísir.is sem minnir meira á glæpasögu en frétt af glæp:Klukkan þrjú kemur til deilna fyrir utan skemmtistaðinn Pravda. Fimm ungir menn byrja svo að ógna manni um tvítugt sem er einn á ferð. Hann hringir í félaga sinn og segist vera í vanda staddur en leggur svo á flótta. Fimmmenningarnir hlaupa hann uppi á Austurvelli og ganga í skrokk á honum. Tveir árásarmannanna eru vopnaðir hnúajárnum. Hringt er á lögreglu sem er komin um mínútu síðar og eltir hún þá vopnuðu. Blaðamaður sér annan þeirra hverfa inn í mannþröngina við Bankastræti en veit ekki hvað varð um hinn. Hinir árásarmennirnir þrír fara þá á eftir fórnarlambinu sem hugðist koma sér undan en þeir ná honum fyrir utan skyndibitastaðinn Quizno's Subs við Lækjargötu.
Þar var Valdís Ósk Valsdóttir að afgreiða og varð vitni að því þegar þeir náðu fórnarlambi sínu. "Þeir kýldu endalaust í hausinn á honum og spörkuðu í hann þegar hann lá niðri. Ég hringdi strax á lögregluna og hún kom eftir svona þrjár mínútur. En áður en þeir komu birtust þrír vinir fórnarlambsins og þá hurfu árásarmennirnir á brott og félagarnir á eftir þeim. Ég veit ekkert hvað varð úr því. Svo komu menn að stumra yfir stráknum og þegar hann hífði upp buxnaskálmina þá stóð bara hnéskelin út," segir Valdis og hryllir við. Samkvæmt upplýsingum sem blaðamaður fékk frá kunningja fórnarlambsins reyndust meiðsl hans ekki alvarleg en lögregla kom honum undir læknishendur.
"Ég hef ekki oft séð svona áður þótt reyndar hafi ég séð einhverja fara fram hjá alblóðuga," segir Valdís eftir þessa óskemmtilegu reynslu.
febrúar 04, 2006
Múhammeðs-myndirnar og Íslandstengingin
Athyglisvert að sú grein sem margar vef-fréttaveitur vísa á og birtir Múhammeðs-myndirnar alræmdu, er skrifuð af Hirti J. Guðmundssyni. (greinin hefur nú, skv. teljara síðunnar, verið sótt 300 þús sinnum)Greinin birtist í vefriti - að því er virðist - hægrisinnaðra ESB andstæðinga. Hjörtur fór eitt sinn mikinn á netinu undir heitinu Ísbjörninn. Hann var eitt sinn í forsvari fyrir hóp sem kallaði sig Flokk framfarasinna, þar sem Óli Gunnarr Håkansson var varaformaður. Aðrir félagsmenn höfðu sig minna í frammi (og gerðu sumir grín að því á þeim tíma að um væri að ræða dúett en ekki flokk).
Hjörtur náði á sínum tíma að komast með boðskap inn í a.m.k. einn eða tvo útvarpsþætti, þar sem hann talaði blíðlega um það hvers vegna Ísland væri í sjálfu sér bara fyrir Íslendinga og þá útlendinga sem gerðust vel íslenskir í lund og hátterni. Eitthvað rámar mig líka í að hann hafi t.d. mótmælt því að Listasafn Íslands spilaði íslömsk bænaköll í kringum arabíska listsýningu. Kallaði það "tákn kúgunnar" eða eitthvað álíka ef ég man rétt. Í kringum þessa síðu hef ég vitnað í ýmislegt sem Hjörtur Ísbjörn sagði og skrifaði (en bæði síður hans og Framfarasinna hafa verið teknar niður) en ekki verður út í það farið núna. Síðast man ég eftir að hafa rekið undrandi augun í nafn hans í fréttatilkynningu um stofnfélaga Heimssýnar. Þótti bara athyglisvert að sjá prófílinn á þessu hollenska vefriti, þar sem hann er fastur penni.
Hjörtur is a member of the Icelandic Independence Party (Sjálfstæðisflokkurinn - conservative/libertarian) and a member of the party's Committee on Foreign Affairs. He also served as chairman of the Foreign Committee of the National Youth Organisation of the Independence Party (Samband ungra sjálfstæðismanna) at its national congress in 2005.Orð Guðmundar góða koma upp í hugann.
febrúar 02, 2006
Starfsmaður vikunnar
- hlýtur að vera bílasalinn sem tók þessa smáauglýsingarmynd, sem ég rakst á forsíðu Vísir.is þegar ég kíkti á hana áðan. Hann var ekki að hafa fyrir því að hreinsa snjóinn af bílnum áður en hann tók myndina. Nema að þetta sé mjög útsmogið bragð til að fela að það á bílinn vantar húddið :)
Læstur inni á bókasafni
Í gær var ég læstur inni á bókasafninu eftir lokun. Bjallan hringdi að vanda 23.55 og allir týjuðu sig saman og út. Ég var búinn að vera þarna síðan fyrir hádegi og þurfti að ganga frá fullt af skjölum, bókum og pakka saman ofan í töskuna.Fimm mínútur yfir tólf, nákvæmlega, tek ég í hurðina sem venjulega opnast sjálfkrafa. Læst.
Leitaði hátt og lágt eftir einhverju í afgreiðslunni, reyndi að nota innanhúskallkerfið en ekkert gekk. Velti fyrir mér að fara bara út um brunaútganginn og setja allt af stað þegar ég loksins fann númerið hjá öryggisgæslu háskólans. Hringdi úr bókasafnssímanum og var bjargað út af gömlum karli með 200 lykla í stórri kyppu. Hann brosti bara og sagðist þurfa að gera þetta ótrúlega oft.
Einsog ég sagði við hann, ef ég ætlaði mér að vera þarna alla nóttina, þá myndi ég næst koma með kodda og sæng. Sem væri svosem ekki svo vitlaus hugmynd þessa dagana!!