mars 06, 2006

500 miles

Búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Var með fyrirlestur í morgun um "War on Terror" í Austur-Asíu. Skrapp í einn dag til London í síðustu viku og hitti vini mína frá Kaíró (sem reyndar eru frá Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu). Borðaði góðan mat á Edgeware Road. Meðan við vorum að bíða eftir hinu fólkinu kíktum við Aline í Ann Summers (til að standa undir nafni sem Norðurlandabúar). Þar sáum við "Mustafa" sem er annaðhvort frekar velheppnaður húmor eða targeteraður á arabíska kúnna verslunarinnar. Burt séð frá þessari kostulegu sýn þá var annars mjög skemmtilegt að hitta krakkana aftur.
Síðastu tvær vikur hef ég verið að undirbúa ritgerðir, stórar sem smáar. Ekkert stórkostlegt drifið á mína daga. Verið hálf slappur enda kuldatíð. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég sé ekki hannaður fyrir hitastig undir fimm gráðum. Um leið og hitinn fer niður fyrir það verð ég slappur!

Sigga kemur á eftir með lestinni og verður fram á miðvikudag. Förum á Joan Baez tónleika í Bristol annað kvöld. Þórir kemur á miðvikudag og verður fram yfir helgi. Á föstudaginn ætla ég að halda partý til að fagna afmælinu mínu sem var á föstudaginn. 24-26. mars fer ég í sextugsafmæli til Frakklands með Gavin og Aishu til foreldra Gavins. 7. apríl flýg ég til Íslands í nokkra daga og fer aftur heim á skírdag. 11. maí skila ég þremur 5000 orða ritgerðum. Um mánaðamótin maí-júní vonast ég að skreppa eitthvað með flugvél.

ps.
Ég hef ekki hitt nein selebretís. Og hef því enga sögu að setja einsog þessa. Fannst þetta fyndið. Sérstaklega þar sem ég kannast við hlutaðeigandi aðila.
Agust skrifaði 06.03.06 13:58

Flokkun: Daglegt líf
Comments

til hamingju með afmælið...

joiskag skrifaði 06.03.06 14:00

Til hamingju með afmælið elsku Ágúst! :)

Unnur skrifaði 06.03.06 17:57

Til hamingju með daginn minn kæri, ætlaði sko ekki að klikka á þessu í ár - 25 er líka falleg tala..........

Var í óvissuferð um helgina, löglega afsökuð :-) fórum til Montreal !

kveðja
Ásgerður

Ásgerður skrifaði 06.03.06 22:30

til hamingju með daginn...var líka í Montreal um helgina...Ólöf

Ólöf skrifaði 07.03.06 10:04