mars 18, 2006
Kuldi
Í nótt var svo kalt í Coventry að ég vaknaði við það ísbirnir voru að éta upp úr ruslafötunum við húsið.Síðan sá ég í dag mörgæsir stinga sér til sunds í tjörninni við skólann.
Án gríns, það er HRÆÐILEGA kalt hérna þessa dagana. Það á að vera bærilegra á morgun en svo verður aftur næturfrost alla næstu viku. Á hinn bóginn segja veðurtölur að meðalhitinn hérna eigi að vera 9-10° í lok mars og fara niður í einungis 2 gráður á nóttinni. Sumstaðar er búið að vera tíu gráðu fráviku frá meðalhita í landinu, enda talað um kaldasta vetur í rúman áratug.
Agust skrifaði 18.03.06 19:08
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Kuldaboli hrekkir ekki bara Englendiga og gesti þeirra þessar vikurnar. Sá djö.... hefur bitið sig fastan í Noregi líka. Nú er kominn 4. apríl og blómin ættu að vera að byrja að brosa framan í landsbúa. Svo er alls ekki. Enn er um 30 cm snjór yfir öllum görðum Óslóar og lítið yndi að arka um þá sem stendur.
En nú spáir betri tíð með sól á lofti. Held ég taki mig til og moki pallinn í dag þannig að maður geti setið úti og sleikt sólargeislana þegar þeir brjótast fram á föstudaginn.
Áfram Grindavík og Liverpool
Guðni skrifaði 04.04.06 07:48og tala dagsins er...
220