mars 18, 2006

Kuldi

Í nótt var svo kalt í Coventry að ég vaknaði við það ísbirnir voru að éta upp úr ruslafötunum við húsið.

Síðan sá ég í dag mörgæsir stinga sér til sunds í tjörninni við skólann.

Án gríns, það er HRÆÐILEGA kalt hérna þessa dagana. Það á að vera bærilegra á morgun en svo verður aftur næturfrost alla næstu viku. Á hinn bóginn segja veðurtölur að meðalhitinn hérna eigi að vera 9-10° í lok mars og fara niður í einungis 2 gráður á nóttinni. Sumstaðar er búið að vera tíu gráðu fráviku frá meðalhita í landinu, enda talað um kaldasta vetur í rúman áratug.
Agust skrifaði kl. 19:08 | Comments (2)
Flokkun: Daglegt líf

mars 06, 2006

500 miles

Búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Var með fyrirlestur í morgun um "War on Terror" í Austur-Asíu. Skrapp í einn dag til London í síðustu viku og hitti vini mína frá Kaíró (sem reyndar eru frá Bretlandi, Svíþjóð og Ítalíu). Borðaði góðan mat á Edgeware Road. Meðan við vorum að bíða eftir hinu fólkinu kíktum við Aline í Ann Summers (til að standa undir nafni sem Norðurlandabúar). Þar sáum við "Mustafa" sem er annaðhvort frekar velheppnaður húmor eða targeteraður á arabíska kúnna verslunarinnar. Burt séð frá þessari kostulegu sýn þá var annars mjög skemmtilegt að hitta krakkana aftur.
Síðastu tvær vikur hef ég verið að undirbúa ritgerðir, stórar sem smáar. Ekkert stórkostlegt drifið á mína daga. Verið hálf slappur enda kuldatíð. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég sé ekki hannaður fyrir hitastig undir fimm gráðum. Um leið og hitinn fer niður fyrir það verð ég slappur!

Sigga kemur á eftir með lestinni og verður fram á miðvikudag. Förum á Joan Baez tónleika í Bristol annað kvöld. Þórir kemur á miðvikudag og verður fram yfir helgi. Á föstudaginn ætla ég að halda partý til að fagna afmælinu mínu sem var á föstudaginn. 24-26. mars fer ég í sextugsafmæli til Frakklands með Gavin og Aishu til foreldra Gavins. 7. apríl flýg ég til Íslands í nokkra daga og fer aftur heim á skírdag. 11. maí skila ég þremur 5000 orða ritgerðum. Um mánaðamótin maí-júní vonast ég að skreppa eitthvað með flugvél.

ps.
Ég hef ekki hitt nein selebretís. Og hef því enga sögu að setja einsog þessa. Fannst þetta fyndið. Sérstaklega þar sem ég kannast við hlutaðeigandi aðila.
Agust skrifaði kl. 13:58 | Comments (4)
Flokkun: Daglegt líf