apríl 27, 2006
Mánaðarleg uppfærsla?
Til að þessi síða verði ekki steinrunnin og í besta falli uppfærð einu sinni í mánuði, þá er ekki úr vegi að koma með örsögu úr daglegu lífi mastersnema í Miðlöndunum.Í dag hef ég setið og skrifað ritgerð, líkt og mestallan tímann síðan ég kom heim frá Íslandi og tvær vikurnar fyrir ferðina. Nema hvað, verandi þreyttur að heyra aldrei í útvarpi og ekki nenna að standa í að hlusta á "tónlistarútvarp" í gegnum netið þá hef ég hlustað á Rás 2 núna í eftirmiðdaginn. Ekki til frásögu færandi nema að ég hlusta á kvöldfréttirnar og stand síðan upp núna rétt áðan og var að skipuleggja tíma minn í kvöld fyrir lestur og skrif. Skyldi svo ekkert af hverju úrið mitt sagði að klukkan væri að ganga átta og hélt að það væri farið að bilast. Sá svo að allar aðrar klukkur sögðu það sama. Fattaði þá að er búinn að vera á "íslenskum tíma" í gegnum útvarpið í mestallan dag.
Þessi saga er til vitnis um hversu spennandi líf mitt er þessa dagana. Já, og hitinn fór upp í 19 stig í vikunni en er núna þetta 12-15 stig næstu daga. Ekki eins oft rigning og bjart fram eftir kvöldi. Sólin kemur upp fyrir allar aldir og það er bjart fram yfir átta á kvöldin, sem er tveimur tímum styttri dagur samt m.v. Reykjavík - skv. weather.com. Mikill munur finnst mér samt, þar sem fyrir nokkrum vikum var orðið dimmt um hálfsexleytið (raunar spilar inn í að búið er að færa klukkuna á sumartíma núna).
Og jú, talar maður ekki um veðrið þegar maður hefur ekkert að segja :-)
Agust skrifaði 27.04.06 19:47
Flokkun: Daglegt líf
Hæ Ágúst
Var að leita á MBL eftir fréttum frá Bagdad og leitarvélin Embla færði mér eina af færslunum þínum af semsagt.net
Sú færsla var orðin nokkuð gömul þannig að ég leita til þín til þess að spá aðeins í framtíðina fyrir mig. Hvað heldur þú að langt sé þangað til að ég geti heimsókt vini mína í Bagdad?
Svona af þeim einstaklingum sem að ég þekki þá ert þú líklega best til þess fallinn að svara....
:)
kveðja frá London, Svana
Svana úr HR skrifaði 02.05.06 03:15Hehe, já, það virðist vera sama hvaða orð þú slærð í leitarvél á íslensku, þessi síða dúkkar alltaf upp :)
Bagdad segirðu, hvað segirðu um haustið 2012? Ég myndi bara segja þessum vinum mínum að hitta mig í Amman/Damaskus/Beirút/Dúbaí (Amman er líklegast auðveldast fyrir Íraka núna, Damaskus er ódýr, Beirút er best fyrir djammið (og matinn) og Dúbaí er ódýrt að fljúg á frá UK) og ekkert vera að ferðast þangað sjálf í þínum sporum :)
Heyrðu, svo þurfum við að mæla okkur mót næst þegar ég fer í kaupstaðarferð, sem gæti verið eftir ca. 3 vikur :)
Ágúst skrifaði 04.05.06 15:16