apríl 27, 2006

Mánaðarleg uppfærsla?

Til að þessi síða verði ekki steinrunnin og í besta falli uppfærð einu sinni í mánuði, þá er ekki úr vegi að koma með örsögu úr daglegu lífi mastersnema í Miðlöndunum.

Í dag hef ég setið og skrifað ritgerð, líkt og mestallan tímann síðan ég kom heim frá Íslandi og tvær vikurnar fyrir ferðina. Nema hvað, verandi þreyttur að heyra aldrei í útvarpi og ekki nenna að standa í að hlusta á "tónlistarútvarp" í gegnum netið þá hef ég hlustað á Rás 2 núna í eftirmiðdaginn. Ekki til frásögu færandi nema að ég hlusta á kvöldfréttirnar og stand síðan upp núna rétt áðan og var að skipuleggja tíma minn í kvöld fyrir lestur og skrif. Skyldi svo ekkert af hverju úrið mitt sagði að klukkan væri að ganga átta og hélt að það væri farið að bilast. Sá svo að allar aðrar klukkur sögðu það sama. Fattaði þá að er búinn að vera á "íslenskum tíma" í gegnum útvarpið í mestallan dag.

Þessi saga er til vitnis um hversu spennandi líf mitt er þessa dagana. Já, og hitinn fór upp í 19 stig í vikunni en er núna þetta 12-15 stig næstu daga. Ekki eins oft rigning og bjart fram eftir kvöldi. Sólin kemur upp fyrir allar aldir og það er bjart fram yfir átta á kvöldin, sem er tveimur tímum styttri dagur samt m.v. Reykjavík - skv. weather.com. Mikill munur finnst mér samt, þar sem fyrir nokkrum vikum var orðið dimmt um hálfsexleytið (raunar spilar inn í að búið er að færa klukkuna á sumartíma núna).

Og jú, talar maður ekki um veðrið þegar maður hefur ekkert að segja :-)
Agust skrifaði kl. 19:47 | Comments (2)
Flokkun: Daglegt líf

apríl 16, 2006

Gleðilega páska

Sit hér inni í vorveðrinu, borða Nestlé páskaegg og skrifa ritgerð.

Fyrir utan massív ritgerðarskrif hefur ýmislegt á daga mína drifið síðasta mánuðinn eða svo. Ég er nýkominn aftur frá Íslandi en skrapp í tæpa viku á föstudaginn var og kom aftur heim á skírdag. Fór í 2 daga til Suður-Frakklands fyrir þremur vikum með Gavin og Aishu.

Þar áður hélt upp á afmælið mitt viku of seint með pompi og prakt of fullu húsi af fólki, sem tókst mjög vel till. Sömu viku hafði ég kíkt til Windsor og Eaton með Siggu og Þóri og fór á tónleika í Bristol með Siggu. Sömu helgi og afmælispartýið fór ég til London með Þóri og þar náðust m.a. þessar myndir af honum:
Agust skrifaði kl. 15:13
Flokkun: Daglegt líf