maí 08, 2006
Jack Rabbit
Jack Straw var lækkaður í tign um helgina af Blair, niður í þingflokksformann. Í staðinn var kona á sjötugsaldri sett í hans fyrrum sæti utanríkisráðherra. Ekki hef ég rekist á neina umfjöllun þar sem Condi Rice var spurð út í þessar breytingar. Samband hennar og Straw þótti með slíkum hætti að ekki hefur slíkt sést síðan Reagan notaði Hollywoodtaktana til að sjarmera Thatcher á níunda áratugnum. The Times birti þessa skopteikningu um "dýr í útrýmingarhættu", þar sem Jackrabbit var ásamt hvalnum Prescott og simpansanum Clarke.Gleymum ekki að Times er virðulegt blað. Hér er Prescott kallaður "Two Shags" af götublöðunum eftir að fráhjáhald hans með ritara var afhjúpað fyrir nokkrum dögum.
Myndin er tekin á gsm-síma og er í lélegum gæðu, en sýnir nóg og meðfylgjandi texta lesanlega. Með að smella á myndina birtist hún í fullri stærð.

Agust skrifaði 08.05.06 15:55
Flokkun: Stjórnmál , UK