maí 09, 2006
Charismatísk lög
Er hægt að tala um chrismatísk lög? Lög sem eru ekki góð eða "heillandi" og jafnvel ekkert spes sem lög. Lög sem hafa ekki charismatískan söng einsog hjá t.d. Dylan, Tom Waits eða Van Morrison. Lögin sjálf hafa charisma, það er eitthvað við þau.You Know My Name (Look up the Number) er eitt þessara laga. Ég man þegar ég heyrði það fyrst þegar ég var 10-11 ára gamall og ég hreyfst strax með því. Það er allt annað en gott, eiginlega bara asnalegt - en samt hefur það einhvern charisma sem maður getur ekki staðist. Það er ekki einu sinni með bít, textinn er einskis nýtur og hljóðfæraleikur og söngur ekkert spes. En ræskingarnar og karakterleikurinn ber með sér að það var mikið fjör í stúdíóinu. Í Media Playernum mínum lýsir tónlistargagnrýnandinn því sem "silly yet strangely irresistable". Sem er rétt.
Agust skrifaði 09.05.06 21:04
Flokkun: Menning