maí 13, 2006
West Ham - Liverpool
Ég fylgist aldrei með fótbolta. En ég hef horfa á útslitaleikinn í enska boltanum og verið límdur við skjáinn síðan í seinni hálfleik.Núna er framlenging og annar hver leikmaður á vellinum virðist vera haltur, liggja í grasinu og aumka sér, í gifsi, eða kominn í nuddtíma á hliðarlínunni.
Þetta er mjög áhugavert, sjá milljarða á grasinu rembast við að pota boltanum á milli sín :)
West Ham missti af gullnu tækifæri að taka titilinn en því miður gat leikmaðurinn ekki lyft réttum fæti til að pota boltanum í markið...
Og núna fer þetta í vítaspyrnukeppni. Skyldu bæði lið hafa nægan mannskap uppistandandi til að taka spyrnurnar?
Agust skrifaði 13.05.06 17:33
Flokkun: UK
Comments
Jebb... þetta var frábær leikur... spennandi og svo unnu góðöflin í lokin...
Strumpakveðjur :)
Strumpurinn skrifaði 16.05.06 13:55