maí 25, 2006
Hvenær reynir maður að drepa mann og hvenær danglar maður bara nokkrum sinnum í hausinn á kerlingunni með felgulykli?
Hæstiréttur hefur stytt fangelsisdóm yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps, úr fimm árum og sex mánuðum í tvö og hálft ár. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína á heimili hennar og slegið hana margsinnis í höfuðið með felgulykli.Felgulykill er m.ö.o. ekki morðvopn - en sé slíkt tól notað til að lemja einhvern ítrekað í höfuðið þá fellst Hæstiréttur á að það sé hættulegt. Og ef einhver kemur heim til þín með felgulykil í hendinni og lemur þig ítrekað í höfuðið, þá er viðkomandi ekki að reyna að drepa þig.
Hæstiréttur fellst ekki á röksemdir héraðsdóms um að um tilraun til manndráps væri að ræða. Ekki væri hægt, af áverkum konunnar að dæma og aðstæðum á vettvangi, að fullyrða að maðurinn hefði ætlað sér að ráða konunni bana. Maðurinn var því dæmdur fyrir stórfellda líkamsárás og dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi auk þess hann þarf að greiða konunni 700.000 krónur auk málskostnaðar beggja aðila. (ruv.is)
Agust skrifaði 25.05.06 17:10
Flokkun: Lög&réttur