maí 27, 2006

Kosningar

Í ár eru fyrstu kosningarnar sem ég tek ekki þátt í. Kýs ekki (eða skila auðu). Ferðalagið niður til London í sendiráðið var einfalda of kostnaðar- og tímafrek.

Sé ég eftir því? Ég er ekki frá því. Eina málefnið sem ég sé skipta máli fyrir þessar kosningar í Hafnarfirði er álverið.

Mitt atkvæði skiptir engu máli þannig lagað séð upp á úrslitin. Meirihlutinn mun halda undir forystu Lenínaðdáandinn. Eina vonin er að honum muni snúast hugur af hagkvæmnisástæðum.
Agust skrifaði 27.05.06 15:51

Flokkun: Stjórnmál , Ísland
Comments

slappur
þetta er engin afsökun
það er hægt að kjósa á 15 stöðum á UK
bara spyrja rétta aðila :D
engin afsökun

Jóhannes Runólfsson skrifaði 31.05.06 22:22