maí 29, 2006

Til hamingju Reykjavík

Reykvíkingar, til hamingju með nýja borgarstjórann ykkar.

Og enn frekar til hamingju með að samstarfsviðræðurnar við Frjálslynda gengu ekki upp.
Fram kom að viðræður flokkanna hófust upp úr klukkan 14 í dag og gengið var frá samstarfinu laust fyrir klukkan 16. (src)
Ummæli dagsins hljóta að vera
„Ég verð mjög góður borgarstjóri, ég verð áfram þessi sami gamli Villi, hæverskur og góður kall," sagði Vilhjálmur er hann var spurður um það hvernig borgarstjóri hann verði.
Það hefði verið athyglisvert að sjá annars konar samstarf. Og nú getur m.a.s. Einar Örn brosað ;-)
Agust skrifaði 29.05.06 19:29

Flokkun: Stjórnmál , Ísland