maí 31, 2006
maí 29, 2006
Til hamingju Reykjavík
Reykvíkingar, til hamingju með nýja borgarstjórann ykkar.Og enn frekar til hamingju með að samstarfsviðræðurnar við Frjálslynda gengu ekki upp.
Fram kom að viðræður flokkanna hófust upp úr klukkan 14 í dag og gengið var frá samstarfinu laust fyrir klukkan 16. (src)Ummæli dagsins hljóta að vera
„Ég verð mjög góður borgarstjóri, ég verð áfram þessi sami gamli Villi, hæverskur og góður kall," sagði Vilhjálmur er hann var spurður um það hvernig borgarstjóri hann verði.Það hefði verið athyglisvert að sjá annars konar samstarf. Og nú getur m.a.s. Einar Örn brosað ;-)
Kosningar
Úrslit kosninganna má túlka á marga vegu. Ein leiðin að lýta á þau er aðVelmegunin er orðin svo mikil að menn telja sig jafnvel hafa efni á að kjósa vinstrigræna.- Vef-Þjóðviljinn á kjördag.
maí 28, 2006
Stórviðburður erlendis
Angelina Jolie og Brad Pitt eignuðust dótturÞetta er eina fréttin sem situr á forsíðu mbl.is þessa stundina sem ekki er tengd sveitastjórnarkosningunum.
Ég geri þá fastlega ráð fyrir að allir hafi átt að vita að Jolie væri ófrísk. Raunar vissi ég ekki að hún og Brad Pitt væru par. En nú veit ég betur. Guði sé lof.
Ef vel er leitað má sjá að "3.000 manns [eru] látnir eftir jarðskjálftann á eynni Jövu".
(Sjá skjámynd af forsíðu mbl.is)
maí 27, 2006
Kosningar
Í ár eru fyrstu kosningarnar sem ég tek ekki þátt í. Kýs ekki (eða skila auðu). Ferðalagið niður til London í sendiráðið var einfalda of kostnaðar- og tímafrek.Sé ég eftir því? Ég er ekki frá því. Eina málefnið sem ég sé skipta máli fyrir þessar kosningar í Hafnarfirði er álverið.
Mitt atkvæði skiptir engu máli þannig lagað séð upp á úrslitin. Meirihlutinn mun halda undir forystu Lenínaðdáandinn. Eina vonin er að honum muni snúast hugur af hagkvæmnisástæðum.
maí 25, 2006
Ascension
Samkvæmt öruggur heimildum er uppstigningardagur í dag, sem ég áttaði mig ekki á fyrr en ég kveikti á íslensku útvarpi í gegnum netið. Hér er fólk að koma úr vinnu núna og sækja bílana sína á bílastæðið fyrir utan húsið mitt.Hvenær reynir maður að drepa mann og hvenær danglar maður bara nokkrum sinnum í hausinn á kerlingunni með felgulykli?
Hæstiréttur hefur stytt fangelsisdóm yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps, úr fimm árum og sex mánuðum í tvö og hálft ár. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína á heimili hennar og slegið hana margsinnis í höfuðið með felgulykli.Felgulykill er m.ö.o. ekki morðvopn - en sé slíkt tól notað til að lemja einhvern ítrekað í höfuðið þá fellst Hæstiréttur á að það sé hættulegt. Og ef einhver kemur heim til þín með felgulykil í hendinni og lemur þig ítrekað í höfuðið, þá er viðkomandi ekki að reyna að drepa þig.
Hæstiréttur fellst ekki á röksemdir héraðsdóms um að um tilraun til manndráps væri að ræða. Ekki væri hægt, af áverkum konunnar að dæma og aðstæðum á vettvangi, að fullyrða að maðurinn hefði ætlað sér að ráða konunni bana. Maðurinn var því dæmdur fyrir stórfellda líkamsárás og dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi auk þess hann þarf að greiða konunni 700.000 krónur auk málskostnaðar beggja aðila. (ruv.is)
maí 23, 2006
Ævisögur
Athyglisverð klausa í Pandóru-kálfi Independent í gær.Clarkson dirt file is empty
A few months back, Pandora reported that an unauthorised biography of Jeremy Clarkson was being written by that Fleet Street scandal-monger, Jane Kelly.
Kelly had promised to uncover some dirt on the boisterous Top Gear presenter's past and, in particular, shed some light on his close friendships with the Duchess of York and TV producer Elaine Bedel.
Sadly, after several months of siftingmuck, Kelly now tells me she's thrown the project in the bin. Surprisingly, for someone who enjoys a reputation as something of a "man's man", Clarkson's past apparently remains devoid of any juice.
"I just couldn't go on with the Clarkson book, I just couldn't dig any real dirt on him," she says. "I just don't think there is any, he is just a very successful journalist."
Boring!
maí 16, 2006
Rétt nafn, rangur maður
The true identity of a man who was mistakenly interviewed on BBC News 24 has been revealedÞetta er æðislega fyndið :-) Horfið á vídjóið og sjáið svipinn á karlgreyinu þegar hann er kynntur. Sjá frétt.

maí 13, 2006
West Ham - Liverpool
Ég fylgist aldrei með fótbolta. En ég hef horfa á útslitaleikinn í enska boltanum og verið límdur við skjáinn síðan í seinni hálfleik.Núna er framlenging og annar hver leikmaður á vellinum virðist vera haltur, liggja í grasinu og aumka sér, í gifsi, eða kominn í nuddtíma á hliðarlínunni.
Þetta er mjög áhugavert, sjá milljarða á grasinu rembast við að pota boltanum á milli sín :)
West Ham missti af gullnu tækifæri að taka titilinn en því miður gat leikmaðurinn ekki lyft réttum fæti til að pota boltanum í markið...
Og núna fer þetta í vítaspyrnukeppni. Skyldu bæði lið hafa nægan mannskap uppistandandi til að taka spyrnurnar?
maí 11, 2006
maí 09, 2006
Charismatísk lög
Er hægt að tala um chrismatísk lög? Lög sem eru ekki góð eða "heillandi" og jafnvel ekkert spes sem lög. Lög sem hafa ekki charismatískan söng einsog hjá t.d. Dylan, Tom Waits eða Van Morrison. Lögin sjálf hafa charisma, það er eitthvað við þau.You Know My Name (Look up the Number) er eitt þessara laga. Ég man þegar ég heyrði það fyrst þegar ég var 10-11 ára gamall og ég hreyfst strax með því. Það er allt annað en gott, eiginlega bara asnalegt - en samt hefur það einhvern charisma sem maður getur ekki staðist. Það er ekki einu sinni með bít, textinn er einskis nýtur og hljóðfæraleikur og söngur ekkert spes. En ræskingarnar og karakterleikurinn ber með sér að það var mikið fjör í stúdíóinu. Í Media Playernum mínum lýsir tónlistargagnrýnandinn því sem "silly yet strangely irresistable". Sem er rétt.
Útflutningur minnst þróuðu ríkjanna
Minnst þróuðu (vanþróuð) ríki heims flytja út 0,8% af öllum útflutningi í heimum. Þar af er þriðjungur þess fluttur út af einu ríki, Angóla. Þar, líkt og í nokkrum öðrum af minnst þróuðum ríkjum hafa útflutningstekjurnar rokið upp undanfarið vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu.Sjá Excel-skjal: LDCs' exports in perspecitve
maí 08, 2006
Jack Rabbit
Jack Straw var lækkaður í tign um helgina af Blair, niður í þingflokksformann. Í staðinn var kona á sjötugsaldri sett í hans fyrrum sæti utanríkisráðherra. Ekki hef ég rekist á neina umfjöllun þar sem Condi Rice var spurð út í þessar breytingar. Samband hennar og Straw þótti með slíkum hætti að ekki hefur slíkt sést síðan Reagan notaði Hollywoodtaktana til að sjarmera Thatcher á níunda áratugnum. The Times birti þessa skopteikningu um "dýr í útrýmingarhættu", þar sem Jackrabbit var ásamt hvalnum Prescott og simpansanum Clarke.Gleymum ekki að Times er virðulegt blað. Hér er Prescott kallaður "Two Shags" af götublöðunum eftir að fráhjáhald hans með ritara var afhjúpað fyrir nokkrum dögum.
Myndin er tekin á gsm-síma og er í lélegum gæðu, en sýnir nóg og meðfylgjandi texta lesanlega. Með að smella á myndina birtist hún í fullri stærð.

maí 07, 2006
Gúgl-blaðamennska DV
Páll Baldvin Baldvinsson, ritstjóri DV, segist einnig harma mistökin. Hann segir þetta hafa gerst vegna mistaka við myndaleit á netinu. Við leit eftir nafni stúlkunnar sem handtekin var á tilteknum skíðavef komi upp röng mynd. Páll segir að við slíka leit í framtíðinni, sem tíðkist nokkuð á DV, verði kannaðar enn betur þær myndir sem svari kalli á netinu. (src)Ef ské kynni að DV myndi einhvern tímann leita að MÉR á netinu (sjá), vil ég taka það skýrt fram - fyrir fram - að þetta er EKKI ÉG:




maí 06, 2006
maí 05, 2006
Krakkakaupfélagið
Það sendi mér lítill fugl tölvupóst í dag - og benti mér á þennan link: http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1807Það sem gerir þessa gömlu auglýsingu svona skemmtilega er ekki aðeins að sjá hvað pattarlegi glókollurinn er líkur sjálfum sér (hlustið sérstaklega eftir áherslunum í "gÓð, skemmtileg og Ódýr") heldur sú einfalda staðreynd að þessi harði anti-béisti skuli hafa verið "poster boy" fyrir Framsóknarmafíuna.
Freuday
Á morgun er Sigmund Freud dagur í New York. Af hverju? Góð spurning.BY mayoral proclamation, tomorrow is Sigmund Freud Day in the city.Sjá nánar: Your Day Has Arrived, New York, but Your Hour Is Up
So, fellow New Yorkers, how does that make you feel?
Do you want to take a 50-minute hour to think about it? Maybe you are already wondering what Freud has to do with New York, a place that he visited only once, in 1909.
We have but two words for you: Woody and Allen. As the mayor acknowledged in his proclamation, "Anyone familiar with the work of Woody Allen could tell you that New York City has long been a leading center of psychoanalysis."
That it is, and it explains why New York is going out of its way to observe Freud Day, the 150th anniversary of the old boy's birth, on May 6, 1856. (He died on Sept. 23, 1939, which made him — oh, you can do the math yourself.)

Sjá útskýringu í 